Sú fyrsta sem fær tíu í einkunn fyrir meistaravörn Sólrún Dögg Jósefsdóttir skrifar 23. maí 2023 15:17 Frá vinstri: Víðir Smári Petersen, Guðrún Sólveig Sigríðardóttir Pöpperl og Þorgeir Örlygsson. Háskóli Íslands Guðrún Sólveig Sigríðardóttir Pöpperl, laganemi við Háskóla Íslands, hlaut í gær 10 í einkunn fyrir vörn á meistararitgerð sinni í greininni. Þetta er í fyrsta sinn sem hæsta einkunn er gefin fyrir meistararitgerð við deildina.
Guðrún Sólveig er öllu vön þegar kemur að háum einkunnum og jafnvel sögulegum. Fyrir tveimur árum brautskráðist hún með BA próf frá deildinni með hæstu einkunn sem gefin hefur verið í lagadeild Háskóla Íslands, 9,33. Sjálf segist Guðrún ekki hafa búist við slíkum árangri. „Maður býst alltaf við því að ganga verr en gengur síðan,“ segir hún í samtali við Vísi. Prófdómari var Þorgeir Örlygsson, fyrrverandi forseti hæstaréttar. Vernd eignarréttar skoðuð Ritgerð Guðrúnar ber titilinn Sambúð 72. gr. stjórnarskrárinnar og 1. gr. 1. viðauka við mannréttindasáttmála Evrópu: Standa rök til breytinga á nálgun íslenskra dómstóla? og fjallar um samspil 72. greinar stjórnarskrárinnar og 1. greinar 1. viðauka við mannréttindasáttmála Evrópu. Í ritgerðinni er vernd eignarréttar samkvæmt íslenskum rétti borin saman við vernd eignarréttar samkvæmt mannréttindasáttmála Evrópu. Hún kannar hvort rök standi til þess að breyta aðferð íslenskra dómstóla við mat á stjórnskipulegu gildi eignarskerðinga með hliðsjón af nýlegri þróun á vettvangi Mannréttindadómstólsins. Áhugasamir geta lesið hana á Skemmunni. Lokamarkmiðið að verða dómari Samhliða laganáminu hefur Guðrún unnið á LEX lögmannastofu síðastliðin tvö ár. „Mér líður mjög vel þar þannig að ég ætla að halda áfram að vinna þar, örugglega í málum á sviði eignarréttar.“ Guðrún heldur því opnu að þreyta lögmannsréttindin næsta vor. Jafnvel fari hún til Bandaríkjanna í LL.M nám eftir að hafa aflað sér smá reynslu heima á Íslandi. Aðspurð hvort hún eigi sér eitthvað draumastarf í lagaheiminum segist hún eiga það lokamarkmið að verða dómari. En það verði þó ekki strax. Keppir í málflutningi á dönsku Að auki mun Guðrún ásamt fjórum öðrum laganemum Háskóla Íslands keppa í norrænu málflutningskeppninni í næsta mánuði. Þar flytja þau mál á dönsku í kappi við nema frá hinum Norðurlöndunum. „Við erum að keppa á dönsku sem er mjög fyndið því maður kann eiginlega bara einhverja menntaskóladönsku,“ segir Guðrún sem þó talar sex tungumál. Góður leiðbeinandi lykilatriði Guðrún tekur það sérstaklega fram að hún á leiðbeinanda sínum Víði Smára Petersen, dósent við lagadeild Háskóla Íslands mikið að þakka. „Hann vakti áhuga minn algjörlega á þessu efni og í rauninni bara eignarréttinum sem réttarsviðs. Það væri erfitt að gera þetta með einhverjum öðrum leiðbeinanda.“ Hún brýnir mikilvægi góðs og áhugasams leiðbeinanda.
Háskólar Skóla - og menntamál Tímamót Lögmennska Tengdar fréttir Útskrifaðist með hæstu meðaleinkunn sem gefin hefur verið í lögfræðinni Guðrún Sólveig Pöpperl gerði sér lítið fyrir og útskrifaðist með hæstu meðaleinkunn á BA-prófi í lögfræði sögu Háskóla Íslands. 21. júní 2021 11:54 Kláraði háskólagráðuna í skiptinámi frá Svíþjóð í stofunni heima Ísak Valsson útskrifaðist með hreina tíu í meðaleinkunn í hagnýtri stærðfræði frá Háskóla Íslands síðastliðinn laugardag. Ísak hefur fengið inngöngu í háskólann í Oxford á Bretlandi í haust og segist hann nokkuð kvíðinn fyrir því, enda kórónuveirufaraldurinn enn í mikilli sókn þar í landi. 3. júlí 2020 22:00 Dúxinn orðið fyrir ómeðvituðum fordómum Ivana Anna Nikolic útskrifaðist með hæstu meðaleinkunn á meistaraprófi í sögu Lagadeildar Háskóla Íslands þegar hún útskrifaðist með meistaragráðu, Mag. Jur., á laugardaginn síðastliðinn. 2. júlí 2020 10:00 Mest lesið Steldu stílnum af konunum í forsetaframboði Tíska og hönnun Af vængjum fram: „Ég ætla ekkert að fara að gráta hérna“ Lífið Krakkatían: Frambjóðendur, rapparar og ofurhetjur Lífið Fréttatía vikunnar: Forsetakosningar, sjóslys og mýflugnafaraldur Lífið Ásdís Rán býður forsetaefnum á rauða dregilinn Lífið Heitustu trendin fyrir sumarið 2024 Lífið „Blessunarlega ekkert stoppaður af foreldrum mínum“ Tíska og hönnun Forseti Hæstaréttar og Kristján Loftsson í gámapartýi Lífið Hafa ekki sést saman í sjö vikur Lífið „Fengum ekki sjokk, en við fengum sjokk að hann væri með hjartagalla“ Lífið Fleiri fréttir Krakkatían: Frambjóðendur, rapparar og ofurhetjur Fréttatía vikunnar: Forsetakosningar, sjóslys og mýflugnafaraldur Af vængjum fram: „Ég ætla ekkert að fara að gráta hérna“ Öll með aðstöðu til að fagna sigri með stuðningsmönnum Diskóstemming í Bíóhöllinni á Akranesi Setja upp söngleiki, leikrit og tónleika í Háskólabíó í sumar Hönnunarhús Markúsar Mána og Kristínar til sölu Myndaveisla: Sællegar skvísur í sumarfíling Andri og Erla selja í Seljunum „Fengum ekki sjokk, en við fengum sjokk að hann væri með hjartagalla“ Hafa ekki sést saman í sjö vikur Elísabet og Áki nefndu stúlkuna Fantaflott með frönskum gluggum í Vesturbænum Heitustu trendin fyrir sumarið 2024 „Lítið rauðhært kríli væntanlegt í nóvember“ Segir sjálfsvígin sárust Elín Hall í rándýrum kjól á rauða dreglinum Bein útsending frá svartþrastahreiðri í Hvalfjarðarsveit Ásdís Rán býður forsetaefnum á rauða dregilinn Horfir vonandi niður af himnum og sér börnin blómstra á bóndabænum Smekklegt einbýli í Fossvogi á 230 milljónir Af vængjum fram: „Krakkar, ekki gera þetta heima“ Þórdís Björk og Júlí Heiðar eignuðust hárprúða stúlku Föruneyti Pingsins: Enn barist í Baldurs Gate Forseti Hæstaréttar og Kristján Loftsson í gámapartýi Óvænt að „gáfumannarapparar“ herji stríð af þessu tagi Matti og tengdó selja 220 milljóna króna einbýlishús Baltasar og Sunneva afhjúpa kynið Endurtekið hvött til að hvíla bláa litinn Gleðitár hjá hundrað konum á Geysi Sjá meira
Útskrifaðist með hæstu meðaleinkunn sem gefin hefur verið í lögfræðinni Guðrún Sólveig Pöpperl gerði sér lítið fyrir og útskrifaðist með hæstu meðaleinkunn á BA-prófi í lögfræði sögu Háskóla Íslands. 21. júní 2021 11:54
Kláraði háskólagráðuna í skiptinámi frá Svíþjóð í stofunni heima Ísak Valsson útskrifaðist með hreina tíu í meðaleinkunn í hagnýtri stærðfræði frá Háskóla Íslands síðastliðinn laugardag. Ísak hefur fengið inngöngu í háskólann í Oxford á Bretlandi í haust og segist hann nokkuð kvíðinn fyrir því, enda kórónuveirufaraldurinn enn í mikilli sókn þar í landi. 3. júlí 2020 22:00
Dúxinn orðið fyrir ómeðvituðum fordómum Ivana Anna Nikolic útskrifaðist með hæstu meðaleinkunn á meistaraprófi í sögu Lagadeildar Háskóla Íslands þegar hún útskrifaðist með meistaragráðu, Mag. Jur., á laugardaginn síðastliðinn. 2. júlí 2020 10:00