Landskjörstjórn tekur við framboðum til forseta Íslands á milli klukkan 10 og 12 í dag í Hörpu. Frambjóðendum ber að skila listum með meðmælum frá 1.500-3.000 kjósendum. Blaðamenn mbl.is munu fylgjast með gangi mála í Hörpu í dag.
Farið verður yfir meðmælalistana um helgina og frambjóðendur látnir vita ef eitthvað þarf að lagfæra.
Alls skiluðu tólf inn undirskriftarlista, það eru: Arnar Þór Jónsson, Ásdís Rán Gunnarsdóttir, Ástþór Magnússon, Baldur Þórhallsson, Eiríkur Ingi Jóhannesson, Halla Hrund Logadóttir, Halla Tómasdóttir, Helga Þórisdóttir, Jón Gnarr, Katrín Jakobsdóttir, Steinunn Ólína Þorsteinsdóttir, og Viktor Traustason.