Golf

Nýhættur Bale tekur þátt á PGA-mótaröðinni

Hjörtur Leó Guðjónsson skrifar
Það kemur líklega fáum á óvart að Gareth Bale sé að snúa sér að golfinu eftir að knattspyrnuferlinum lauk,
Það kemur líklega fáum á óvart að Gareth Bale sé að snúa sér að golfinu eftir að knattspyrnuferlinum lauk, Jose Manuel Alvarez/Quality Sport Images/Getty Images

Fyrrverandi knattspyrnumaðurinn Gareth Bale hefur tilkynnt að hann muni taka þátt í einum viðburði á PGA-mótaröðinni í golfi í byrjun næsta mánaðar. 

Bale lagði knattspyrnuskóna á hilluna fyrir rétt rúmum tveimur vikum eftir afar farsælan feril. Með Real Madrid varð hann spænskur meistari í þrígang ásamt því að vinna Meistaradeild Evrópu fimm sinnum svo eitthvað sé nefnt. Þá vann hann bandarísku MLS-deildina með Los Angeles FC áður en skórnir fóru á hilluna.

Þessi leikja- og markahæsti leikmaður velska landsliðsins frá upphafi hefur aldrei reynt að leyna golfáhuga sínum. Á tíma sínum hjá Real Madrid veifaði hann eitt sinn velska fánanum eftir leik landsliðsins þar sem á stóð: „Wales. Golf. Madrid. Í þessari röð,“ og gaf þar með til kynna að hann hefði meiri áhuga á því að slá golfkúlur en að spila knattspyrnu með einu stærsta félagsliði heims.

Bale hefur nú tilkynnt að hann muni taka þátt á AT&T Pebble Beach Pro-Am mótinu á PGA-mótaröðinni í golfi í byrjun næsta mánaðar, en þar fá áhugagolfarar tækifæri á því að spila með nokkrum af bestu atvinnumönnum heims.

Alls munu 156 áhugamenn taka þátt á mótinu með jafn mörgum atvinnumönnum. Meðal þeirra sem mæta til leiks eru þeir Matt Fitzpatrick, Patrick Cantlay og Jordan Spieth.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×