Dauðsföll margfalt færri í þessari bylgju

Boris Johnson, forsætisráðherra Bretlands, bindur vonir við að afléttingar létti …
Boris Johnson, forsætisráðherra Bretlands, bindur vonir við að afléttingar létti lund landa sinna. AFP

Þrátt fyrir hratt vaxandi tíðni Covid-19-smita í Bretlandi eru dauðsföll nú margfalt færri en í fyrri bylgjum. Þetta kemur fram í frétt The Telegraph.

Daglegur fjöldi dauðsfalla er í dag einungis einn sextándi af því sem hann var þegar um svipað mörg dagleg smit var að ræða í Bretlandi í fyrri bylgjum.

Í dag stendur sjö daga meðaltal daglegra dauðsfalla af völdum Covid-19 í um 40, samanborið við um 654 hinn 26. desember. Þá var daglegur fjöldi smita um 45 þúsund, svipaður og hann er í dag. 

Færri dauðsföll en venjulega 

Fjöldi heildardauðsfalla er sem stendur 5,2 prósentum lægri en fimm ára meðaltal síðustu ára samkvæmt samantekt hagstofu Bretlands (Office for National
Statistics (ONS)). Þar af veldur Covid-19 aðeins 1,2 prósentum dauðsfalla. 

Innlagnir á sjúkrahús eru um fjórðungur af þeim fjölda sem sást í vetrarbylgjunni í Bretlandi og fjöldi sjúklinga á sjúkrahúsum fimmtungur þess sem hann stóð í í vetur. 

Fram undan er „frelsisdagurinn mikli“ í Bretlandi þar sem sóttvarnaaðgerðum verður meira eða minna aflétt.

Umdeildar afléttingar

Afléttingarnar hafa verið gríðarlega umdeildar í ljósi fjölda smita undanfarið vegna hins bráðsmitandi delta-afbrigðis Covid-19.

Neil Ferguson, prófessor í Imperial-háskólanum í Lundúnum, lýsti því yfir að ef daglegum smitum yrði haldið undir 100 þúsund á dag og innlögnum á sjúkrahús undir þúsund á dag myndi hann telja slakanirnar árangursríkar.

Sjö daga meðaltal daglegra sjúkrahúsinnlagna stendur í 616. 

Slakanirnar koma sömuleiðis á besta tíma fyrir skólabörn þar sem sumarfrí hefst um þetta leyti í Bretlandi og hiti í kortunum.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert