Landssamband lögreglumanna íhugar málsókn vegna meiðyrða Hallgerður Kolbrún E. Jónsdóttir skrifar 23. október 2020 18:00 Snorri segir mikið ósætti meðal lögreglumanna vegna umræðunnar um fánana. Eggert Jóhannesson - Vísir/Baldur
Formaður Landssambands lögreglumanna segir það koma til greina að einstaklingar sem hafi látið gróf ummæli falla á netinu um fánamálið svokallaða verði lögsóttir. Hann segir lögreglumenn ósátta með það hvernig málið hefur þróast. Talsverð reiði hefur birst á samfélagsmiðlum undanfarna daga vegna myndar sem sýnir íslenska lögreglukonu með fána á undirvesti sínu sem haldið hefur verið fram að tengist hatursorðræðu. Snorri Magnússon, formaður Landssambands lögreglumanna, segir lögreglumenn afar ósátta með umræðuna. Fólk hafi verið kallað öllum illum nöfnum, rasista, fasista og nasista jafnvel og svo lengi mætti telja. Hann segist hafa heyrt af því að umræðan hafi verið einkar svæsin á Pírataspjallinu svokallaða, sem er Facebook-hópur Pírata. „Ég hef ekki séð það sem þar fer fram en heyrt af ýmsu sem þar hefur verið skrifar og það nær ekki nokkurri átt að fólk skuli leifa sér að skrifa sumt af því sem það setur þarna inn og fella þarna undir heila starfsstétt fólks sem fer út hvern einasta dag og vinnur sína vinnu eins og hver annar,“ segir Snorri í viðtali í Reykjavík síðdegis á Bylgjunni. Hann segist sannfærður um að margir myndu ekki segja þá hluti sem þeir hafa birt á netinu við lögreglumenn augliti til auglits. „Það er svo margt sem fólk leifir sér í skjóli nafnleyndar á svona samfélagsmiðlum, því miður, og illa ígrundað og illa hugsað. Það liggur fyrir varðandi þetta tiltekna mál að lögreglukonan sem á þarna hlut að máli hefur nú þegar beðist afsökunar á þessu og gerði sér enga grein fyrir því hvað þessi neðsti fáni, sem mesti virðist hafa farið fyrir brjóstið á fólki, mögulega táknar,“ segir Snorri. Segir fánann koma frá norska hernum Hann segir það koma til greina að fólk verði lögsótt vegna ummæla sem það hefur látið falla. „Það verður að koma í ljós eftir því hvernig málið þróast. Það er augljóslega uppi á borði, það er alveg klárt mál,“ segir Snorri. „Ég er búinn að funda um þetta með okkar lögmönnum til að sjá hvernig hægt er að nálgast þessa vinnu í framhaldinu.“ Þá sé fáninn sem hafi verið mest til umræðu, svokallaður Vínlandsfáni, norskur að uppruna. „Þessi tiltekni fáni sem þarna virðist birtast mynd af hann er norskur, kemur frá norska hernum, er notaður þar sem hluti af felulitabúningum sem norskir hermenn eru í starfandi á erlendri grundu,“ segir Snorri. „Það er hins vegar þannig líka með mörg svona merki að þau fá á sig slyðruorð því miður vegna þess að hópar einstaklinga taka þetta upp og nota þetta í svona negatívum tilgangi. Það var ekki það sem þarna var á bak við, alls ekki. Og það er þegar búið að biðjast afsökunar á þessu og útskýra þetta meðal annars með því að viðkomandi hafi ekki gert sér grein fyrir því hvað þetta væri. Ég hafði sjálfur ekki hugmynd um þennan fána fyrr en ég sá þessa mynd í fjölmiðlum og fór að leita mér upplýsinga um hann.“ Hægt er að hlusta á viðtalið við Snorra í heild sinni í spilaranum hér að neðan.
Lögreglan Reykjavík síðdegis Tjáningarfrelsi Tengdar fréttir Erfitt að koma því í nógu sterk orð hvað myndin er ljót Allir lögreglumenn hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu eru búnir að fjarlægja persónulegar merkingar af búningi sínum að sögn yfirlögregluþjóns. Hann er sorgmæddur yfir því hvernig umræðan um málið hefur þróast. 23. október 2020 11:49 Biggi lögga telur fánamálið geta styrkt lögregluna Lögreglumaðurinn Birgir Örn Guðjónsson, betur þekktur sem Biggi lögga, telur að fánamálið svokallaða sem upp kom hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu í vikunni geti styrkt lögregluna til framtíðar. 23. október 2020 10:35 Kynþáttafordómar séu ekki ríkjandi innan lögreglunnar en fánamálinu verði fylgt eftir Dómsmálaráðherra segir að haturstákn séu ekki liðin innan lögreglunnar. Fánamálinu svokallaða verði fylgt eftir með aukinni fræðslu eða menntun lögreglumanna. 22. október 2020 18:16 Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur. Mest lesið Endurnýja spá um lok umbrota við Grindavík Innlent „Eldgosið virðist í andarslitrunum“ Innlent Sú sem var oftast nefnd ekki ein af fjórum efstu í könnunum Innlent Tuga enn saknað og 55 látnir Erlent Forsetavaktin 2024: Hver verður sjöundi forseti lýðveldisins? Innlent „Skrímsladeildin“ hafi skorið upp herör gegn mótframbjóðendum Katrínar Innlent „Lífið heldur áfram eftir svona áfall“ Innlent Sló til starfsmanns og beit viðskiptavin Innlent Katrín efst en Jón hrynur í nýrri könnun Innlent Verður borgarstjóri Lundúna þriðja kjörtímabilið í röð Erlent Fleiri fréttir „Eldgosið virðist í andarslitrunum“ Endurnýja spá um lok umbrota við Grindavík Öruggara Suðurland“ – nýtt og spennandi verkefni Sú sem var oftast nefnd ekki ein af fjórum efstu í könnunum Landsmenn ánægðir með frammistöðu Höllu Tómasdóttur í kappræðunum Sló til starfsmanns og beit viðskiptavin „Skrímsladeildin“ hafi skorið upp herör gegn mótframbjóðendum Katrínar Hefur ekki áhuga á slúðurfréttum af öðrum frambjóðendum Tólf tíma tökudagar og svo forsetaframboð Hvernig ætlar ríkið að sækja milljónirnar 360 sem Haraldur gaf? Flottustu Mustang bílarnir landsins til sýnis í dag Halla Hrund eigi langt í land með að tryggja sér embættið Rýnt í forsetakappræður og fylgst með Bakgarðshlaupi „Ég get ekki annað en sagt satt“ Ríflega fjörutíu prósent líst illa á Katrínu „Lífið heldur áfram eftir svona áfall“ Sigu niður í Gretti sterka og dældu úr honum sjó Ók á tvö hundruð með lögguna á hælunum Sólríkasta byrjun árs í Reykjavík í 77 ár Hafa rukkað þá sem valda sinubruna um kostnað við útkall Ótrúlegustu aðskotahlutir gera óskunda í dósatalningarvélum Fjöldi verkfallsboðana á Keflavíkurflugvelli áhyggjuefni Kosið um sameiningu Húna- og Skagabyggðar í júní Nýjustu skoðanakannanir, verkfallsaðgerðir á flugvellinum og týndur gaffall Halla Hrund líka vinsæll annar kostur Kolbeinn hafi strokið kynfæri stúlkunnar ítrekað Segja lýðræðis- og mannréttindabakslag staðreynd Ný sendiskrifstofa opnuð í Síerra Leóne Baldur segir niðurstöður nýjustu kannana vonbrigði Halla Hrund mælist með mest fylgi í nýrri könnun Maskínu Sjá meira
Erfitt að koma því í nógu sterk orð hvað myndin er ljót Allir lögreglumenn hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu eru búnir að fjarlægja persónulegar merkingar af búningi sínum að sögn yfirlögregluþjóns. Hann er sorgmæddur yfir því hvernig umræðan um málið hefur þróast. 23. október 2020 11:49
Biggi lögga telur fánamálið geta styrkt lögregluna Lögreglumaðurinn Birgir Örn Guðjónsson, betur þekktur sem Biggi lögga, telur að fánamálið svokallaða sem upp kom hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu í vikunni geti styrkt lögregluna til framtíðar. 23. október 2020 10:35
Kynþáttafordómar séu ekki ríkjandi innan lögreglunnar en fánamálinu verði fylgt eftir Dómsmálaráðherra segir að haturstákn séu ekki liðin innan lögreglunnar. Fánamálinu svokallaða verði fylgt eftir með aukinni fræðslu eða menntun lögreglumanna. 22. október 2020 18:16