Greiddi ungri kærustu miskabætur í fyrra en nú sjálfur bótaþegi Kolbeinn Tumi Daðason skrifar 8. apríl 2021 15:31 Karlmaðurinn var dæmdur fyrir ári til að greiða fyrrverandi kærustu sinni, sem þá var unglingsstúlka, 500 þúsund krónur í bætur. Nú fékk hann 250 þúsund krónur í miskabætur. Vísir/Vilhelm Karlmaður sem fyrir ári var dæmdur í þriggja mánaða skilorðsbundið fangelsi fyrir meðal annars að hóta unglingsstúlku að birta af henni nektarmyndir hefur fengið dæmdar 250 þúsund krónur í miskabætur frá íslenska ríkinu.
Ástæðan var sú að lögregla rannsakaði síma hans án heimildar. Héraðsdómur Reykjavíkur kvað upp dóm sinn á þriðjudag. Forsaga málsins er sú að unglingsstúlkan og karlmaðurinn, sem var nokkrum árum eldri, höfðu verið par og sagði stúlkan aldursmuninn hafa gert vinskap þeirra óviðeigandi. Eftir að þau hættu saman fóru stúlkunni að berast skilaboð sem leiddu til þess að stúlkan kærði manninn. Sagðist á barmi taugaáfalls Skilaboðin voru send á tímabilinu september 2015 til mars 2016 þegar hún lagði fram kæruna. Fyrrverandi kærastinn væri að hóta birtingu nektarmynda og kúgaði hana með því að hóta því að fyrirvara sér. Hún lýsti því þannig að hún væri á barmi taugaáfalls. Skilaboðin sem kært var fyrir voru 38 og var karlmaðurinn dæmdur fyrir 22 þeirra. Þó kom fram í dómnum að ekkert benti til þess að hann hefði staðið við hótanir sínar og birt myndirnar. Þá hefði hann beðið stúlkuna afsökunar í skilaboðum árið 2017 og um leið lýst því yfir að hann myndi láta hana alveg í friði næstu mánuði. Leit Héraðsdómur Reykjaness til þess að langur tími leið frá því að brotin áttu sér stað og þar til ákæra var gefin út. Fór svo að karlmaðurinn fékk fyrrnefndan þriggja mánaða skilorðsbundinn dóm og var dæmdur til að greiða henni 500 þúsund krónur í bætur. Hann hefur nú fengið helminginn upp í þá upphæð til baka frá íslenska ríkinu. Eyddi spjalli þar sem kynfæri stúlkunnar sáust á mynd Ástæðan er sú að þegar karlmaðurinn var færður til skýrslutöku hjá lögreglu og farsími hans handlagður þar sem talið var að þar mætti finna sönnunargögn í málinu. Hann hefði viðurkennt að hafa myndir af stúlkunni í síma sínum og opnaði við það tækifæri spjall á milli hans og stúlkunnar, þar sem sjá mátti kynfæri stúlkunnar. Eyddi hann spjalli sínu við stúlkuna að viðstöddum rannsóknaraðilum og verjanda sínum. Þegar lögregla hugðist rannsaka símann nánar neitaði stefnandi að veita heimild til þess og gefa upp upplýsingar um aðgangsorð. Var símanum komið til tölvurannsóknardeildar þar sem hann var opnaður án dómsúrskurðar. Karlmaðurinn krafðist þess við héraðsdóm í framhaldinu að lögreglu yrði gert að aflétta haldlagningu símans. Þeirri kröfu var hafnað og staðfesti Hæstiréttur þann úrskurð. Í framhaldinu var svo gefin út ákæra á hendur manninum árið 2018 og dómur féll í janúar í fyrra. Stórfellt gáleysi og saknæm háttsemi Í skaðabótamáli mannsins féllst héraðsdómur á kröfu hans um að háttsemi lögreglu og fulltrúa Lögreglustjórans á Suðurnesjum að láta afrita gögn í síma karlmannsins og rannsaka án úrskurðar hefði verið saknæm. Um stórfellt gáleysi hefði verið að ræða. Ekki væri hægt að fallast á rök lögreglu að karlmaðurinn hafi sýnt af sér sök sjálfur með því að neita að afhenda símann til afritunar gagna. Þá væri ekki hægt að fallast á að sú staðreynd að karlmaðurinn hlaut dóm fyrir brot sitt kæmi í veg fyrir að hann ætti rétt á bótum. Voru þær metnar hæfilegar 250 þúsund krónur en hann hafði krafist 800 þúsund króna.
Lögreglan Dómsmál Stafrænt ofbeldi Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur. Mest lesið Stöðugt landris og hugað að rýmingu Innlent Skjálftavirkni aukist í kjölfar gosloka Innlent Færeyingar áforma 4.500 króna aðgangseyri á alla ferðamenn Erlent Forsetavaktin 2024: Hver verður sjöundi forseti lýðveldisins? Innlent Fylgi Höllu hrundi eftir kappræðurnar á RÚV Innlent Dýrin séu dauð, veik, horuð og í miklum vanhöldum Innlent Börnum safnað saman og þau skotin Erlent Ræktar 95 tegundir af túlípönum í Mosfellsdal Innlent Meintur fjárdráttur mikið áfall fyrir starfsfólk skólans Innlent Ellefu slasaðir eftir að flugtak Boeing 737 mistókst Erlent Fleiri fréttir Skjálftavirkni aukist í kjölfar gosloka Stöðugt landris og hugað að rýmingu Ræktar 95 tegundir af túlípönum í Mosfellsdal Dýrin séu dauð, veik, horuð og í miklum vanhöldum Ríkisstjórn þurfi að gera meira í þágu vopnahlés Dauð lömb á túni, árás á Rafah og Eurovision Maður sem áreitir börn í Hafnarfirði til rannsóknar Sýknaður af nauðgun en enginn vafi að konan telji á sér brotið Fylgi Höllu hrundi eftir kappræðurnar á RÚV Sinubruni við Hellisskóg á Selfossi 150 þolendum sinnt vegna ofbeldis í nánu sambandi Meintur fjárdráttur mikið áfall fyrir starfsfólk skólans Stóra Svört bar fimm svörtum lömbum Eldgosinu lokið, meintur fjárdráttur og manndrápsrannsókn Eldvörp líkleg næst Rannsókn vegna meints manndráps í Kiðjabergi miðar vel Samanburður við lóðamál olíufélaganna eins „fjarri sannleikanum og hægt er“ Guðríður Hrund skipuð skólameistari MK Eldgosinu lokið eftir 54 daga Leggja aftur fram tillögu um að selja húsnæði MÍR Facebook bannar Ástþóri að auglýsa Býður þjóðarhöll Færeyja undir landsleiki Íslands Reykjavík lækkar gjaldskrár vegna þjónustu við barnafjölskyldur Fylgjast grannt með gangi mála Margt bendi til þess að gosinu sé lokið María Sigrún birtir tölvupósta Dags „Á endanum snýst þetta allt um peninga“ Sækja veikan sjómann Eldur í iðnaðarhúsnæði á Höfða Efstar með ómarktækan mun á milli sín Sjá meira