Segir lítið gert í „áratugalangri plágu“ Kristín Ólafsdóttir skrifar 26. september 2022 10:21 Varaformaður umhverfis og skipulagsráðs borgarinnar telur fólk veigra sér við að kaupa rafmagnshjól af ótta við að þeim verði stolið. Lögregla verði að taka málin fastari tökum - þó það væri ekki nema til að leggja baráttunni við loftslagsvandann lið.
Stuldur á hjóli leikarans Gísla Arnar Garðarssonar fyrir utan Borgarleikhúsið vakti mikla athygli í nýliðinni viku. Slípirokki beitt á lás af dýrustu gerð í fjölmenni, eins og sýnt var í kvöldfréttum Stöðvar 2. Og sambærileg dæmi eru auðvitað mýmörg eins og þekkt er, rafmagns- jafnt sem hefðbundin hjól tekin ófrjálsri hendi. Viðvarandi, áratugalangur vandi. Pawel Bartoszek varaformaður umhverfis- og skipulagsráðs Reykjavíkurborgar kallar eftir því að vandinn verði tæklaður á hærra plani en nú er gert. „Hingað til hefur verið litið á þetta fyrst og fremst sem eignatjón. En þau sem lenda í því að hjólinu er stolið vita að bæði tilfinningatjónið og skerðing á ferðafrelsinu er töluvert meiri en svo. Og ég held að þetta hafi þau áhrif að fólk veigri sér við því að kaupa sér dýrari rafmagnshjól sem eru alveg frábær bylting og við þurfum að ýta við. Þannig að ef við ætlum að ná til dæmis árangri í umhverfis- og loftslagsmálum þá er ekkert smámál að koma þessum hlutum í lag,“ segir Pawel. Pawel Bartoszek, varaformaður umhverfis- og skipulagsráðs.Vísir/Egill Leggur til samræmda skráningu Bílafólk lifi ekki í stöðugum ótta um að fararskjótinn verði horfinn í lok dags. Það eigi hjólafólk ekki heldur að gera. Og ýmislegt megi gera til að greiða úr þessu misræmi, segir Pawel. „Til dæmis að hafa einhvers konar samræmda skráningu á nýjum hjólum sem öll nýskráð hjól myndu fara í gegnum, þannig að lögregla myndi til dæmis eiga auðveldara með að finna rétta eigendur hjóla. Við vitum það að það eru mörg hjól sem finna ekki eigendur jafnvel þótt þau rati til lögreglunnar.“ Þegar fararmátar eins og rafskútur séu hins vegar annars vegar gangi hlutirnir hratt fyrir sig - boðum og bönnum komið á innan fárra ára. „En þegar kemur að þessu vandamáli, hjólreiðaþjófnaði, sem hefur verið plága í marga áratugi, þar hefur lítið gerst,“ segir Pawel. Frá stuldi hjóls Gísla Arnar.
Samgöngur Hjólreiðar Skipulag Loftslagsmál Lögreglumál Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur. Mest lesið Vitni gefur ekki upp nafn vegna ótta við hefndaraðgerðir Innlent Þurftu að farga 30 þúsund eintökum vegna forsetaframboðs Innlent „Heill vinnustaður er dreginn sundur og saman í háði“ Innlent Forsetavaktin 2024: Hver verður sjöundi forseti lýðveldisins? Innlent „Við lögleiðum heróínið en bönnum áfengið. Þetta er galið“ Innlent Lýsa eftir Sigurði Fannari Innlent Álftin breyttist í dreka og rak hundinn upp úr með látum Innlent Fékk ekki að kveðja eiginmanninn fyrir flugið til Nígeríu Innlent Megrunarlyfin nýjasta vopnið gegn hjartasjúkdómum? Erlent Drengurinn er fundinn Innlent Fleiri fréttir Vann fimmtíu milljónir króna „Köld vatnsgusa“ framan í skólasamfélagið í Laugardal 1.715 börn fengið leikskólapláss Fékk ekki að kveðja eiginmanninn fyrir flugið til Nígeríu Vill sjá Latabæ birtast aftur í sjónvarpsstöðvum heims Drengurinn er fundinn Lýsa eftir Sigurði Fannari „Við lögleiðum heróínið en bönnum áfengið. Þetta er galið“ Koma á fót framkvæmdanefnd um málefni Grindavíkur Vonleysi veðmálanna og eiginmanni vísað úr landi Álftin breyttist í dreka og rak hundinn upp úr með látum Sóttu veikan mann á skemmtiferðaskip umkringt hafís Settur forstjóri skipaður forstjóri „Heill vinnustaður er dreginn sundur og saman í háði“ Breyttar forsendur kalli á nýjan unglingaskóla í Laugardal Ævintýralandið Ísland séð úr háloftunum Dæmdir fyrir ofbeldishrinu Hefur áhyggjur af nýfæddum lömbum á Höfða Uppflettingar í sjúkraskrá: Segir málinu alls ekki lokið Ítrekar afsökunarbeiðni til vöggustofubarna og fjölskyldna þeirra Helmingi dræmari kjörsókn nú en í síðustu forsetakosningum Fulltrúar Stígamóta reyna að tryggja öryggi kvennanna í Nígeríu Heimsótti Julian Assange í Belmarsh-öryggisfangelsið Brottvísun hælisleitenda og dræm þátttaka í utankjörfundi Bein útsending: Má ég taka þátt... í lífinu? Vitni gefur ekki upp nafn vegna ótta við hefndaraðgerðir Beint streymi: Uppfinningar og einkaleyfi Landris heldur áfram á sama hraða Þurftu að farga 30 þúsund eintökum vegna forsetaframboðs Friðlýsir hluta Fjaðrárgljúfurs Sjá meira