Fór ekki til Spánar vegna veikinda

Antony í leik með Manchester United gegn Southampton síðastliðinn sunnudag.
Antony í leik með Manchester United gegn Southampton síðastliðinn sunnudag. AFP/Darren Staples

Brasilíski vængmaðurinn Antony verður ekki með Manchester United í síðari leik liðsins gegn Real Betis í 16-liða úrslitum Evrópudeildarinnar í knattspyrnu.

Hann er að glíma við veikindi og gat af þeim sökum ekki æft með liðinu í morgun.

Leikurinn fer fram á morgun og fór Antony ekki með Rauðu djöflunum til Sevilla í dag.

Manchester United vann fyrri leikinn á Old Trafford í síðustu viku, 4:1, og er því í einkar góðri stöðu til þess að tryggja sér sæti í átta liða úrslitum Evrópudeildarinnar.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert