Biðtími krabbameinssjúklinga lengist Elísabet Inga Sigurðardóttir skrifar 24. október 2021 20:01 Anna Margrét Bjarnadóttir er formaður Brakkasamtakanna. stöð2 Formaður Brakkasamtakanna segir Ísland hafa dregist aftur úr hinum Norðurlöndunum þegar komi að skimun fyrir krabbameini. Þá hafi biðtími eftir fyrsta viðtali skurðlæknis eftir krabbameinsgreiningu lengst. Formaðurinn vill að ferlar verði einfaldaðir í heilbrigðiskerfinu.
BRCA er brjóstkrabbameinsgen sem getur verið af tegundinni BRCA1 og BRCA2 en þær eru meinvaldandi stökkbreytingar. Í gær fjölluðum við um ljósmyndasýninguna: Of ung fyrir krabbamein? sem meðal annars er sett upp til þess að vekja athygli á því að endurskoða þurfi framkvæmd eftirlits hjá þeim sem bera meinvaldandi stökkbreytingu og þá sérstaklega ungu fólki. „Því miður eru tölur sem sýna fram á að síðastliðin ár er biðtími að lengjast frá því að þú greinist með krabbamein og þar til þú færð fyrsta viðtal hjá skurðlækni. Einnig er áhyggjuefni að við höfum dregist aftur úr varðandi skimun og eftirlit og erum komin langt niður fyrir Norðurlöndin varðandi þátttöku í skimun,“ sagði Anna Margrét Bjarnadóttir, formaður Brakkasamtakanna. Hún segir að þeir sem leiti til brakkasamtakanna hafi kvartað undan flóknum ferlum í kerfinu. Mikilvægt sé að einfalda kerfið og þá ferla sem fara í gang þegar einstaklingur greinist með krabbamein eða meinvaldandi stökkbreytingu. „Bæði varðandi hvert þú ferð í eftirlit og ef þú finnur hnút sjálfur við sjálfsskoðun, að þú vitir hvert þú átt að hringja og biðtími sé alls ekki langur að komast að.“ Árið 2018 var vefurinn arfgerð.is opnaður en hann er á vegum íslenskrar erfðagreiningar. Þar getur fólk óskað eftir upplýsingum um hvort það beri BRCA2 -stökkbreytingar sem auka verulega líkur á arfgengu krabbameini. Anna Margrét segir að eftir að vefurinn var opnaður hafi margir leitað til erfðaráðgjafar Landspítalans sem sé mjög jákvætt. Hún segir þó mikilvægt að hafa í huga aða arfgerð.is veiti eingöngu upplýsingar um BRCA 2 en ekki BRCA 1. „Ég hef fengið til mín konur sem hafa fengið neikvæða niðurstöðu þar og Halda jafnvel að þær séu ekki með hááhættu og ekki arfberi en þá er það önnur erfðabreyting sem gerði það að verkum að þú ert með krabbamein.“
Skimun fyrir krabbameini Heilbrigðismál Tengdar fréttir Segir lækna hafa hlegið að sér og sagt að hún væri of ung til að greinast með krabbamein Sóley Björg Ingibergsdóttir greindist með krabbamein aðeins 27 ára. Hún segir að læknar hafi hlegið að henni og sagt að hún væri allt of ung til að greinast með krabbamein þegar hún leitaði til þeirra vegna gruns um sjúkdóminn. Hún vill að auðveldara verði fyrir ungt fólk að leita til læknis. 23. október 2021 20:04 Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur. Mest lesið Staldraði við þegar talað var um fóstur sem frumuklasa Innlent Einhver í herberginu segi ekki satt Innlent Svona voru kappræður sex efstu í baráttunni um Bessastaði Innlent Katrín tekur forystuna á ný og Halla T í sókn Innlent Skipstjórinn gistir fangageymslur ásamt stýrimanni Innlent Kviknaði í bensínbíl í akstri á Dalbraut Innlent „Við erum ekki hlutlaus þjóð“ Innlent Óvinnufær eftir harkalegt fall þegar strappur slitnaði Innlent Skipstjórinn og tveir stýrimenn handteknir vegna sjóslyssins Innlent Fólk muni ekki borga 200 þúsund fyrir „heimili sem það notar sem sumarbústað“ Innlent Fleiri fréttir Staldraði við þegar talað var um fóstur sem frumuklasa Skipstjórinn gistir fangageymslur ásamt stýrimanni Kviknaði í bensínbíl í akstri á Dalbraut Einhver í herberginu segi ekki satt „Við erum ekki hlutlaus þjóð“ Katrín tekur forystuna á ný og Halla T í sókn Vendingar í nýrri könnun og mannbjörg á ögurstundu Svona voru kappræður sex efstu í baráttunni um Bessastaði Spyr hvort eðlilegt sé að ráðherrar taki þátt í erlendum mótmælum Viktor hvetur forsetaframbjóðendur til að sniðganga Stöð 2 Skipstjórinn og tveir stýrimenn handteknir vegna sjóslyssins Óvinnufær eftir harkalegt fall þegar strappur slitnaði Skipuð aðstoðarlögreglustjóri á höfuðborgarsvæðinu Valdimar Hermannsson nýr sveitarstjóri Vopnafjarðarhrepps Bjarni ætlar að geta Katrínar í formálanum Þórey í Konukoti hlaut mannréttindaverðlaun Reykjavíkur Nafnið Hroði of hroðalegt Fékk sting í hjartað þegar hann sá nafnið á bátnum Um 920 mál óafgreidd hjá kærunefnd útlendingamála Færa almannavarnastig niður á óvissustig vegna vatnslagnarinnar Fólk muni ekki borga 200 þúsund fyrir „heimili sem það notar sem sumarbústað“ Vísbending um að flutningaskip hafi hvolft bátnum Skikkar lögreglu til að rannsaka stjórn aðventista Sjóslys, Þórkatla og framtíð Play Kvikusöfnunin áfram stöðug Tóku niður íslenska svikasíðu með FBI Hafna tilboðum í áætlunarflug milli Reykjavíkur og Hornafjarðar Segir rangt að gjaldskylda á nagladekk sé í skoðun „Blaut tuska í andlit Félags eldri borgara í Reykjavík“ Vilja sinna Íslendingum á Spáni betur Sjá meira
Segir lækna hafa hlegið að sér og sagt að hún væri of ung til að greinast með krabbamein Sóley Björg Ingibergsdóttir greindist með krabbamein aðeins 27 ára. Hún segir að læknar hafi hlegið að henni og sagt að hún væri allt of ung til að greinast með krabbamein þegar hún leitaði til þeirra vegna gruns um sjúkdóminn. Hún vill að auðveldara verði fyrir ungt fólk að leita til læknis. 23. október 2021 20:04