Í gæsluvarðhald vegna árásar í skóla

Lögreglan á vettvangi í gær.
Lögreglan á vettvangi í gær. mbl.is/Kristinn Magnússon

Einn piltur var í dag í Héraðsdómi Reykjavíkur úrskurðaður í vikulangt gæsluvarðhald, eða til 21. janúar, á grundvelli rannsóknarhagsmuna.

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu óskaði eftir þessu í þágu rannsóknar hennar á líkamsárás í Borgarholtsskóla í Grafarvogi um hádegisbil í gær.

Tveir aðrir piltar, sem einnig voru handteknir vegna málsins, eru aftur á móti lausir úr haldi lögreglu, en ekki var fallist á kröfu um gæsluvarðhald yfir þeim, að því er segir í tilkynningu.

Rannsókn málsins miðar vel, en ekki er unnt að veita frekari upplýsingar um gang hennar að svo stöddu.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert