„Pop-up verslun“ og nýr veitingastaður opnuðu á Keflavíkurflugvelli Atli Ísleifsson skrifar 24. júní 2022 13:35 Frá borðaklippingum í morgun. isavia Tvær nýjar verslanir og veitingastaður opnuðu á Keflavíkurflugvelli í dag, en Isavia auglýsti nýverið laus svokölluð pop-up rekstrarrými til leigu á vellinum. Reiknað er með að fleiri pop-up veitingastaðir og verslanir opni á Keflavíkurflugvelli á næstu vikum.
Í tilkynningu frá Isavia segir að veitingastaðurinn Maika‘i og skartgripaverslunin Jens hafi opnað í pop-up rýmum sem starfrækt verða á flugvellinum í takmarkaðan tíma. Þar að auki var bókabúð Pennans Eymundsson opnuð í nýju og stærra rými eftir flutninga á einni nóttu úr eldra rými búðarinnar í flugvallarbyggingunni. Veitingastaðurinn Maika‘i opnaði í pop-up rými á vellinum í morgun.Isavia „Veitingastaðurinn Maika‘i hefur notið mikilla vinsælda síðustu ár en um er að ræða skyndibita í hollari kantinum, hinar svokölluðu açaí skálar. Eigendur Maika‘i, Elísabet Metta Svan Ásgeirsdóttir og Ágúst Freyr Hallsson hófu sölu á skálunum í Mathöllinni við Höfða en opnuðu stuttu síðar fyrsta útibúið undir nafni Maika'i á Hafnartorgi í miðborg Reykjavíkur. Síðan þá hefur Maika‘i vaxið og dafnað og hægt er að kaupa vörur þeirra í verslunum víða um land. Pennin Eymundsson opnaði í nýju rými á Keflavíkurflugvelli í morgun.Isavia Jens er fjölskyldufyrirtæki sem nú er rekið af þriðju kynslóð gullsmiða sem hafa tekið þátt í að skapa og þróa íslenska skartgripatísku í 60 ár. Verslunin Jens hefur verið starfrækt við Grandagarð í Reykjavík, í Kringlunni og Smáralind en fjölskyldan og aðrir starfsmenn Jens eru mjög spennt fyrir opnun nýrrar verslunar á Keflavíkurflugvelli. Hægt verður að panta vörur hjá gullsmiðunum og sækja í fríhöfninni,“ segir í tilkynningunni. Farþegafjöldi hefur aukist mikið á síðustu mánuðum og í farþegaspá Isavia fyrir árið 2022 er gert ráð fyrir að heildarfjöldi farþega sem fara um Keflavíkurflugvöll verði 5,7 milljónir. Er það um 79 prósent endurheimt á fjölda farþega frá 2019.
Keflavíkurflugvöllur Verslun Veitingastaðir Tengdar fréttir Loksins bar, Nord og Joe and the Juice loka senn í Leifsstöð Breytingar eru framundan á veitinga- og verslunarrýmum í Leifsstöð en opinn kynningarfundur vegna útboðs Isavia á rekstri veitingastaða í flugstöðunni verður haldinn í Hörpu í dag. 30. mars 2022 07:38 Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur. Mest lesið „Svo hefst kapphlaupið í það hver er fyrstur að ná sturtunni!“ Atvinnulíf Hnífjöfn atkvæðagreiðsla sem gæti endað fyrir dómi Viðskipti innlent Dagar Workplace eru taldir Viðskipti erlent Fyrsta flugi Icelandair til Pittsburgh fagnað Viðskipti Segir arðgreiðslur ÁTVR hafa lækkað um 400 milljónir vegna netsölu Viðskipti innlent Fyrirtæki hvött til að halda upp á daginn í dag og gera sér dagamun Atvinnulíf Rauf sátt vegna Max-málsins og gæti átt yfir höfði sér refsimál Viðskipti erlent Krökkunum finnst hálf hallærislegt að mamman kunni Friends þættina utan að Atvinnulíf Snillingur í útlöndum: „Þegar vinirnir keyptu sér nammi keypti ég mér diskókúlur“ Atvinnulíf Segir að Play sé og verði áfram með höfuðstöðvar á Íslandi Viðskipti innlent Fleiri fréttir Hnífjöfn atkvæðagreiðsla sem gæti endað fyrir dómi Segir arðgreiðslur ÁTVR hafa lækkað um 400 milljónir vegna netsölu Fóru í fyrsta flugið milli Calgary og Keflavíkurflugvallar Segir að Play sé og verði áfram með höfuðstöðvar á Íslandi Guðmundur tilnefndur til Evrópsku nýsköpunarverðlaunanna 2024 Forstjóri Play íhugar að fljúga frekar til Íslands en frá Base parking gjaldþrota Endurkjörinn formaður og fimm koma ný inn í stjórn Þjónusturof hjá alþjóðlegum birgja Samkaup, Heimkaup og Orkan hefja samrunaviðræður Stefna á opnun fyrsta skammtíma raforkumarkaðarins á næsta ári Bein útsending frá Nýsköpunarviku Sparisjóður hagnaðist um 205 milljónir króna Starfsfólk fær 150 milljónir í hlutabréfum Magnús eignast Latabæ á nýjan leik Ráðin framkvæmdastjóri Rue de Net Almennt útboð Íslandshótela hefst á morgun Ætlar að gera Grillhúsið að heitasta staðnum í Borgarnesi Landsvirkjun selur í fyrsta skipti í raforkukauphöll Ráðin forstöðukona Nýrra orkukosta Eigendur TGI Fridays kaupa Grillhúsið Freyr ráðinn til Eflingar Tilnefndur sem besti leikur fyrir snjalltæki á Norðurlöndum MAST olli Brúneggjum tjóni en RÚV sýknað Tilboðið afturkallað og Eik öðlast frelsi til athafna á ný Brottfarirnar í apríl nokkuð færri en á síðasta ári Engin hópuppsögn í apríl Fer frá Deloitte til Góðra samskipta Mun stýra tæknisviði Carbfix Íslendingar þurfi að gæta hófs í vexti efnahagslífsins Sjá meira
Loksins bar, Nord og Joe and the Juice loka senn í Leifsstöð Breytingar eru framundan á veitinga- og verslunarrýmum í Leifsstöð en opinn kynningarfundur vegna útboðs Isavia á rekstri veitingastaða í flugstöðunni verður haldinn í Hörpu í dag. 30. mars 2022 07:38