Óeirðirnar á Norður-Írlandi halda áfram enn eina nóttina Kjartan Kjartansson skrifar 9. apríl 2021 10:43 Ungir þjóðernissinar ögra lögreglumönnum við svonefndan friðarvegg á milli hverfi mótmælenda og kaþólikka í vestanverðri Belfast í gærkvöldi. AP/Peter Morrison Til átaka kom á milli ungmenna og lögreglu í Belfast á Norður-Írlandi í gærkvöldi. Köstuðu ungmennin steinum og flugeldum að lögreglumönnum sem svöruðu með háþrýstivatnsbyssum. Óeirðir hafa brotist út daglega frá því um páskana.
Vaxandi spennu hefur gætt í norður-írsku samfélagi að undanförnu vegna áhrifa útgöngu Bretlands úr Evrópusambandinu á breska yfirráðasvæðið á Írlandi og versnandi samskipta stjórnmálaflokka mótmælenda og kaþólikka sem deila völdum nauðbeygðir. Óeirðir brutust fyrst út um páskana og hafa haldið áfram í þessari viku. Leiðtogar bæði sambandssinna og þjóðernissinna, Boris Johnson, forsætisráðherra Bretlands, Michael Martin, forsætisráðherra Írlands, og Joe Biden Bandaríkjaforseti höfðu hvatt til stillingar en allt kom fyrir ekki. Ungir þjóðernissinnar og sambandssinnar grýttu lögreglu og hver aðra sem fyrr. AP-fréttastofan segir að lögreglumenn í óeirðarbúningum hafi sigað hundum á óeirðarseggi og beitt vatnsbyssum til þess að dreifa mannfjöldanum eftir að ungmenni grýttu þá með öllu lauslegu. Blóðug átök geisuðu á milli sambandssinna sem vilja halda í sambandið við Bretlands annars vegar og írskra þjóðernissinna á Norður-Írlandi um árabil. Eftir friðarsamninginn sem var kenndur við föstudaginn langa árið 1998 hefur friður að mestu ríkt fyrir utan götuskærur sem hafa blossað upp við og við. Með útgöngu Bretlands úr Evrópusambandinu um áramótin var tekið upp tolla- og landamæraeftirlit með ákveðnum vöruflutningum á milli Norður-Írlands og Bretlands. Sambandssinnum gremst fyrirkomulagið og halda því fram að landamærum hafi verið komið upp á Írlandshafi. Óeirðir síðustu daga hafa fyrst og fremst átt sér stað í hverfum sambandssinna.
Norður-Írland Bretland Brexit Tengdar fréttir Fimmtíu lögregluþjónar hafa særst á Norður-Írlandi Minnst fimmtíu lögregluþjónar hafa særst í átökum í róstum á Norður-Írlandi síðustu sex nætur. Kveikt var í strætisvagni í nótt. 8. apríl 2021 20:01 Hvatt til stillingar eftir fjórðu nótt óeirða á Norður-Írlandi Óeirðarseggir kveiktu í rútu sem þeir stálu og köstuðu bensínsprengjum að lögreglumönnum í Belfast í nótt. Þetta var fjórða nóttin í röð sem til óeirða kemur í borginni. Boris Johnson, forsætisráðherra Bretlands, fordæmdi óeirðirnar og hvatti til stillingar. 8. apríl 2021 08:14 Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur. Mest lesið Stöðugt landris og hugað að rýmingu Innlent Skjálftavirkni aukist í kjölfar gosloka Innlent Færeyingar áforma 4.500 króna aðgangseyri á alla ferðamenn Erlent Forsetavaktin 2024: Hver verður sjöundi forseti lýðveldisins? Innlent Fylgi Höllu hrundi eftir kappræðurnar á RÚV Innlent Dýrin séu dauð, veik, horuð og í miklum vanhöldum Innlent Börnum safnað saman og þau skotin Erlent Meintur fjárdráttur mikið áfall fyrir starfsfólk skólans Innlent María Sigrún birtir tölvupósta Dags Innlent Ræktar 95 tegundir af túlípönum í Mosfellsdal Innlent Fleiri fréttir Færeyingar áforma 4.500 króna aðgangseyri á alla ferðamenn Börnum safnað saman og þau skotin Skotið á íbúa Rafah og heilbrigðiskerfi Gasa hrunið Ellefu slasaðir eftir að flugtak Boeing 737 mistókst Lýsa hræðilegu ofbeldi fyrir sjóslys þar sem tugir létu lífið Takmarkar hernaðaraðstoð verði gerð árás á Rafah Grænlendingar segja sig úr Norðurlandaráði Skýrustu merkin um lofthjúp um bergreikistjörnu til þessa Enn og aftur tafir á málaferlum gegn Trump Umfangsmestu árásir Rússa í nokkrar vikur Trump blótaði þegar Daniels lýsti meintu samneyti þeirra Hrina árása á þýska stjórnmálamenn veldur áhyggjum Um 800.000 Evrópubúar taldir hafa fallið fyrir kínverskri svikamyllu Bandaríkjamenn stöðvuðu vopnasendingu til Ísrael í síðustu viku Annar hvirfilbylurinn í Oklahoma á rúmum mánuði Segir Bandaríkjamenn þurfa að þrýsta á Ísraela Skotárás við heimili Drake Stormy Daniels í dómsal með Trump Lífverðir Selenskís sakaðir um að skipuleggja banatilræði Reynt að siga lögreglu á vitni í málinu gegn Trump Fundu hlerunarbúnað í fundarherbergi ráðherra Pútín hefur fimmta kjörtímabilið með meiri völd en áður Sagðist saklaus af því að hafa drepið með eitruðum sveppum Verðhækkanir á döner-kebab eitt helsta áhyggjuefni Þjóðverja Geimskoti Starliner var frestað í nótt Segja nýjar reglur um merkingar blekkingarleik laxeldisfyrirtækja Ísraelsmenn í aðgerðum í Rafah og taka yfir landamærastöðina Tillagan „langt frá“ grundvallarkröfum Ísraela Ferðamannastaðir Færeyja lokaðir vegna viðhalds Bein útsending: Starliner ber geimfara til geimstöðvarinnar Sjá meira
Fimmtíu lögregluþjónar hafa særst á Norður-Írlandi Minnst fimmtíu lögregluþjónar hafa særst í átökum í róstum á Norður-Írlandi síðustu sex nætur. Kveikt var í strætisvagni í nótt. 8. apríl 2021 20:01
Hvatt til stillingar eftir fjórðu nótt óeirða á Norður-Írlandi Óeirðarseggir kveiktu í rútu sem þeir stálu og köstuðu bensínsprengjum að lögreglumönnum í Belfast í nótt. Þetta var fjórða nóttin í röð sem til óeirða kemur í borginni. Boris Johnson, forsætisráðherra Bretlands, fordæmdi óeirðirnar og hvatti til stillingar. 8. apríl 2021 08:14