Tók við undirskriftum fyrir bætta dýravelferð

Bjarni Benediktsson forsætisráðherra tekur við undirskriftalistanum úr hendi Lindu Karenar …
Bjarni Benediktsson forsætisráðherra tekur við undirskriftalistanum úr hendi Lindu Karenar Gunnarsdóttir, formanns Dýraverndarsambands Íslands. Ljósmynd/Stjórnarráðið

Bjarni Benediktsson forsætisráðherra tók í dag á móti undirskriftalista frá Dýraverndarsambandi Íslands þar sem skorað er á stjórnvöld að bæta eftirlit með velferð dýra í landinu.

Linda Karen Gunnarsdóttir, formaður Dýraverndarsambandsins, afhenti forsætisráðherra undirskriftirnar í Stjórnarráðshúsinu en rúmlega 3.600 manns skrifuðu nöfn sín á listann. Þetta kemur fram í tilkynningu frá forætisráðuneytinu.

Í áskoruninni sem ber yfirskriftina Ekkert dýr á að þjást segir meðal annars að rík lagaleg skylda hvíli á stjórnvöldum að gæta að velferð dýra. Of víða sé illa búið að búfénaði og eftirlit yfirvalda veiti lítið aðhald.

Það sé því nauðsynlegt að mati Dýraverndarsambandsins að endurskoða sem fyrst lög og reglugerðir er varða dýravelferð. Forsætisráðherra tók á móti undirskriftunum og kvaðst myndu fylgja málinu eftir.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert