„Þetta var draumur sem ég bjóst ekkert endilega við að myndi rætast“ Runólfur Trausti Þórhallsson skrifar 25. september 2022 07:00 Martha Hermannsdóttir hefur ákveðið að setja skóna upp í hillu og einbeita sér að tannlækningum. Vísir/Daníel Þór Martha Hermannsdóttir, fyrirliði KA/Þórs í Olís deild kvenna undanfarin ár, hefur ákveðið að leggja skóna á hilluna eftir viðburðarríkan feril. Tannlækningar eiga nú hug hennar allan.
Martha verður 39 ára síðar á árinu en hún hefur glímt við meiðsli síðustu tvö tímabil. Hún hefur því ákveðið að þetta sé rétti tímapunkturinn til að láta gott heita. „Þetta er búið að blunda aðeins í mér. Meiðsli hafa aðeins verið að hrjá mig þannig að eftir síðasta tímabil, þegar við urðum Íslandsmeistarar, var ég aðeins að spá í þetta en fannst ég ekki geta hætt. Þetta var svo ótrúlega skemmtilegt og þvílíkt ævintýri það tímabil,“ sagði Martha í viðtali við Stöð 2 og Vísi í dag, föstudag. „Það var ákveðið að við myndum fara í Evrópukeppnina eftir það. Ég tímdi ekki að sleppa því, að fara í Evrópukeppnina að með mínu uppeldisfélagi svo ég ákvað að taka eitt tímabil í viðbót. Svo fann ég eftir síðasta tímabil, það var mikið álag.“ „Við fórum til Kósovó og Spánar í Evrópukeppninni, undanúrslit í báðum bikarkeppnunum, þreföld umferð. Rosalega margir leikir og mikið álag. Skrokkurinn var orðinn ansi þreyttur í vor. Ég tók svo sem ekkert ákvörðunina alveg strax en mig grunaði að þetta myndi enda.“ Martha segist hafa íhugað að hætta þegar hún eignaðist sitt yngsta barn en síðan hafa liðið sjö ár og framlengdist ferillinn því töluvert. „Svo togar þetta í mann, þetta gefur manni svo mikið. Kannski helst eftir það (barnsburðinn) sem ég íhugaði að hætta en svo var ég fljót að komast í form. Var kominn á völlinn áður en ég vissi af. Martha hefur lengi verið burðarás hjá KA/Þór og eftir misjafnan árangur um árabil upplifði hún að verða bæði Íslands- og bikarmeistari með uppeldisfélaginu vorið 2021. „Þetta var draumur sem ég bjóst ekkert endilega við að myndi rætast hér á Akureyri. Ég spilaði náttúrulega með Haukum þegar ég var fyrir sunnan í náminu og varð Íslands- og bikarmeistari með þeim. En það er eitthvað sérstakt sætt við það að vinna með uppeldisfélaginu. Að vera hérna í KA heimilinu með sína áhorfendur og alla sem maður þekkir svo þetta var einstaklega sætt,“ sagði tannlæknirinn Martha Hermannsdóttir að endingu. Fyrirliðinn Martha Hermannsdóttir fagnar titlinum vorið 2021.vísir/hulda margrét
Handbolti Olís-deild kvenna Þór Akureyri KA Mest lesið Scottie Scheffler fer fyrir dómstóla í byrjun júní Golf Kaupstefna Brighton ástæðan fyrir brotthvarfi De Zerbi Enski boltinn Hundahvíslarinn sem bræddi hjörtu Kansasbúa Sport „Mér finnst ég vera besti leikmaðurinn á Íslandi“ Körfubolti Anníe Mist: Hver veit hvar ég verð eftir eitt ár Sport Sjáðu umdeilda vítið sem KR fékk og öll mörkin úr Bestu í gær Íslenski boltinn Löðrungaði son sinn fyrir að gera lítið úr Juventus Fótbolti Eigendur Inter í fjárhagskröggum og við það að missa félagið frá sér Fótbolti Völdu Albert í lið ársins Fótbolti Wembanyama fylgir í fótspor goðsagna Körfubolti Fleiri fréttir Óðinn og félagar misstu frá sér fimm marka forskot „Þetta einvígi er rétt að byrja“ Bjarki og félagar bikarmeistarar fjórða árið í röð Uppgjör: FH - Afturelding 29-32 | Mosfellingar taka forystuna Gummersbach heldur í Evrópuvon eftir sigur í Íslendingaslag Haukur og félagar lentir undir í úrslitaeinvíginu eftir vítakeppni Strákarnir hans Gumma komu til baka í öðrum spennutrylli Mættust síðast í úrslitum fyrir aldarfjórðungi Uppgjörið, viðtöl og myndir: Valur - Olympiacos 30-26 | Einum leik frá Evróputitli Ómar og Viggó röðuðu inn mörkum í sigrum Bjarki og félagar í úrslit eftir öruggan sigur „Umgjörðin er bara engu lík, gæsahúð að hlaupa inn á völlinn“ „Þurfum bara okkar besta leik í vetur“ Tíunda tapið í röð hjá Íslendingaliði Balingen Grín sem snerist mjög fljótt upp í alvöru Uppgjörið, viðtöl og myndir: Valur - Haukar 28-25 | Valskonur Íslandsmeistarar Íslendingarnir gerðu lítið þegar Skara féll úr leik Jafnt í Íslendingaslag í undanúrslitum Blaðamannafundur fyrir úrslitaleik Vals í Evrópubikarnum Úr húsvarðarstarfi í atvinnumennsku Uppgjörið og viðtöl: Valur - Afturelding 27-29 | Mosfellingar í úrslit Teitur skoraði fimm og Flensburg heldur naumlega í við toppliðin „Okkur dauðlangar í meira“ Íslendingaliðið tryggði sér oddaleik Ólafur Gústafsson aftur heim í FH: „Gleðidagur fyrir okkur FH-inga“ Einar hættir með kvennalið Fram „Við erum alveg róleg“ Uppgjör: Haukar - Valur 22-30 | Meistararnir í 2-0 Algjör niðurlæging sveina Dags sem hafa aldrei tapað stærra Vonar að pabbi sinn komist ekki á ÓL Sjá meira