Búast ekki við að rýmingu verði aflétt strax Sylvía Hall skrifar 16. janúar 2021 10:17 Frá Seyðisfirði í desember síðastliðnum. Ákveðið var að rýma hluta Seyðisfjarðar vegna úrkomuspár í gær. Vísir/Egill Rýming er enn í gildi á Seyðisfirði og fylgjast sérfræðingar náið með stöðunni. Talsverðri úrkomu var spáð á Seyðisfirði í nótt en var hún þó minni en búist var við. Sérfræðingar gera allt eins ráð fyrir því að úrkoman gæti orðið meiri í dag. „
Það gæti aukist. Við fylgjumst með í dag, við höfum ekki séð neinar breytingar á neinu. Við erum á vaktinni og fylgjumst með og tökum stöðuna jafnóðum,“ segir Sveinn Brynjólfsson hjá ofanflóðavakt Veðurstofunnar í samtali við Vísi. Hann segist ekki búast við því að rýmingu verði aflétt strax en sérfræðingar meti næstu skref. „Við erum bara að funda um stöðuna og horfa á þessi mæltitæki sem við höfum, úrkomumælana og tala við heimamenn hvort þeir sjái einhverjar hreyfingar,“ segir Sveinn. „Það er allt með kyrrum kjörum eins og er.“ Rýmingin var lögð til í varúðarskyni þar sem óvissa er um stöðugleika hlíðanna í Botnabrún eftir skriðuföllin í desember síðastliðnum. Samkvæmt tilkynningu frá Almannavörnum er reiknað með því að rýming vegna skriðuhættu á Seyðisfirði verði á næstu vikum lögð til í ákveðnum skrefum eftir því sem meiri reynsla fæst á stöðugleika hlíðarinnar. „Þessi reynsla fæst með því að fylgjast með því hvernig jarðlög bregðast við úrkomu í kjölfar nýafstaðinnar skriðuhrinu og því er lögð til rýming við minni úrkomu til að byrja með en vænta má að síðar verði,“ segir tilkynningunni.
Múlaþing Aurskriður á Seyðisfirði Veður Almannavarnir Tengdar fréttir Seyðfirðingar fá aukna sálfræðiþjónustu Heilbrigðisstofnun Austurlands hefur verið veitt 17 milljóna króna viðbótarfjárframlagi til þess að efla geðheilbrigðisþjónustu í þágu Seyðfirðinga vegna aurskriðanna sem féllu í desember. Þetta kemur fram á vef stjórnarráðsins. 15. janúar 2021 19:09 Gul viðvörun á Austfjörðum vegna mikillar rigningar Veðurstofa Íslands hefur gefið út gula viðvörun fyrir Austfirði vegna talsverðrar eða mikillar rigningar. Viðvörunin tekur gildi klukkan eitt í nótt og stendur til klukkan þrjú síðdegis á morgun, laugardag. Þá á að draga úr úrkomuákefð. 15. janúar 2021 07:03 Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur. Mest lesið Auglýsa eftir „eiganda“ fjármuna Innlent Trump líklegur til að græða á úrskurði Hæstaréttar Erlent Ögurstund og opnunarhóf hjá frambjóðendum Innlent „Breiðholt mesta fátæktargildra landsins“ Innlent Útlagar spreyjaðir gylltir Innlent Sigríði þykir ólíklegt að hún nái undirskriftum Innlent Framboðslistar opinberaðir eftir helgi Innlent Tveir létust í banaslysi í Eyjafirði Innlent Ætlaði að koma upp um barnaníðing en lenti í klóm hans Innlent Segir lág laun leikskólakennara mýtu Innlent Fleiri fréttir Framboðslistar opinberaðir eftir helgi Auglýsa eftir „eiganda“ fjármuna Glæsileg þjóðbúningamessa á Hvolsvelli Ögurstund og opnunarhóf hjá frambjóðendum Forsetaslagurinn, leit að eiganda fjármuna og rjómablíða Fjölbreytt verkefni hjá björgunarsveitum í dag Útlagar spreyjaðir gylltir Helga Þórisdóttir komin með lágmarksfjölda meðmæla Sinueldur í Reykjanesbæ Pétur Einarsson leikari látinn Kólnar á öllu landinu eftir óvenjugóðan fyrsta sumardag „Ákveðnar efasemdir um ákveðna þætti“ Fimm teravött af orku og 20 milljarðar í samgöngur Seltjarnarnesbær gengur frá sölu á Safnatröð Sigríði þykir ólíklegt að hún nái undirskriftum Umdeilt frumvarp, íslenskan og sumarveðrið Eiríkur og Bjarni takast á um nefnd um íslenska tungu Ræða mest málefni íslenskunnar á fundum enskumælandi ráðs Tíu sektaðir vegna notkunar nagladekkja „Breiðholt mesta fátæktargildra landsins“ Segir borgarstjóra óttalegan vettling Vilja taka upp auðlindagjald að hætti Norðmanna „Dapurlegt“ að andstæðingar bólusetninga hafi svo mikil áhrif Stefnir í sólríkan og hlýjan sumardag fyrsta víða um land Eigendur sjókvíaeldis þurfa ekki að greiða auðlindagjald Tveir létust í banaslysi í Eyjafirði Veturinn sá kaldasti síðan 1999 Vill rjúfa framkvæmdastopp í orkumálum Kári Stefánsson, ákall um vaxtalækkun og hinsegin list Skemmtiferðaskip um tíu metrum frá strandi við Viðey Sjá meira
Seyðfirðingar fá aukna sálfræðiþjónustu Heilbrigðisstofnun Austurlands hefur verið veitt 17 milljóna króna viðbótarfjárframlagi til þess að efla geðheilbrigðisþjónustu í þágu Seyðfirðinga vegna aurskriðanna sem féllu í desember. Þetta kemur fram á vef stjórnarráðsins. 15. janúar 2021 19:09
Gul viðvörun á Austfjörðum vegna mikillar rigningar Veðurstofa Íslands hefur gefið út gula viðvörun fyrir Austfirði vegna talsverðrar eða mikillar rigningar. Viðvörunin tekur gildi klukkan eitt í nótt og stendur til klukkan þrjú síðdegis á morgun, laugardag. Þá á að draga úr úrkomuákefð. 15. janúar 2021 07:03