Markahæst í öðrum leiknum í efstu deild

Díana Dögg Magnúsdóttir átti góðan leik.
Díana Dögg Magnúsdóttir átti góðan leik. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Díana Dögg Magnúsdóttir var markahæst hjá Sachen Zwickau er liðið mátti þola 25:32-tap fyrir Buxtehuder á útivelli í efstu deild Þýskalands í handbolta í dag.

Díana skoraði sex mörk, tveimur meira en næstu samherjar.

Sachsen Zwickau er án stiga eftir fyrstu tvo leikina, en liðið fór upp í efstu deild með því að bera sigur úr býtum í 2. deildinni á síðustu leiktíð.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert