Gullinn mánudagur fyrir Breta Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 26. júlí 2021 16:00 Adam Peaty fagnar gullverðlaunum sínum í 100 metra bringusundi sem hann var að vinna á öðrum leikunum í röð. AP/Martin Meissner Mánudagurinn 26. júlí 2021 fer í hóp með bestu dögum Bretlands á Ólympíuleikunum því Bretar unnu þrenn gullverðlaun í dag.
Bretarnir sjálfir eru farnir að tala um „Magic Monday“ eða „Magnaðan mánudag“ eftir uppskeru sína í keppni Ólympíuleikanna í Tókýó. Þetta eru fyrstu þrjú gullverðlaun Breta á leikunun í ár. Þetta eru enn fremur fimmtu Ólympíuleikarnir í röð þar sem Bretar ná þremur gullverðlaunum eða fleiri á sama deginum en fyrir ÓL í Aþenu 2004 hafði það aðeins gerst tvisvar sinnum hjá þeim. Adam Peaty Tom Daley and Matty Lee Tom Pidcock Alex Yee It's been an incredible day for Team GB so far at the Tokyo Olympics! #bbcolympics #tokyo2020 #teamgb— BBC Sport (@BBCSport) July 26, 2021 Besti dagur Breta á Ólympíuleikum er laugardagurinn 4. ágúst 2012 þegar Bretar unnu sex gullverðlaun á sama deginum. Dagurinn byrjaði á því að Adam Peaty vann gull í 100 metra bringusundi þegar hann kom í mark á 57,37 sekúndum og varð um leið fyrsti breski sundmaðurinn sem nær að verja Ólympíugull á milli leikja. Það er ekki hægt að segja að sigur Peaty hafi komið á óvart því hann á sextán hröðustu tíma sögunnar í 100 metra bringusundi og hefur ekki tapað í greininni í sjö ár á sama tíma og hann hefur slegið heimsmetið fimm sinnum. Sigur Tom Daley og Matty Lee í samhæfðum dýfingum af tíu metra palli kom aftur á móti mun meira á óvart. Þeir Daley og Lee höfðu þar betur í baráttu við kínverska parið Cao Yuan og Chen Aisen. Hinn 27 ára gamli Daley er að keppa á sínum fjórðu Ólympíuleikum en var að vinna sín fyrstu gullverðlaun. Daley og Lee fengu 471.81 stig á móti 470.58 stigum hjá þeim kínversku. Kínverjar vinna þar með ekki alla átta greinarnar í dýfingum á þessum Ólympíuleikum. Þriðja Ólympíugull dagsins var síðan hjá Thomas Pidcock í fjallahjólreiðum. Hann kom í mark á 1:25:14 klst. og var 20 sekúndum á undan Mathias Flückiger frá Sviss.
Ólympíuleikar 2020 í Tókýó Bretland Sund Dýfingar Hjólreiðar Mest lesið Ákærður fyrir að slá barn sitt með blautu handklæði Sport Þjálfari Orra Steins sáttur: Hann hefur haldið kjafti Fótbolti Þurfti að eyða níu og hálfum tíma í leigubíl til að komast í burtu Sport Hrósar Alberti en Inter þarf að safna fyrir honum Fótbolti Landsliðsmaður blandar sér í umræðuna um umdeilda sigurkörfu Njarðvíkinga Körfubolti Saman á ný eftir súrrealískan dag: „Við erum eins og lím við hvorn annan“ Íslenski boltinn Áfall fyrir Vestra: Eiður Aron brotinn og lengi frá Íslenski boltinn Tók sinn tíma að jafna sig Körfubolti Liðsfélagarnir í sumarfríi en hann að vinna tólf tíma á dag á Íslandi Körfubolti Valsmenn spila fyrri leikinn á heimavelli Handbolti Fleiri fréttir Í beinni: Valur - Fram | Auka sprækir Framarar pressuna á Val? Nær allir leikmenn Man Utd til sölu fyrir rétt verð Sveinn til Kolstad og vill ólmur læra af Gullerud „Gæinn væri Alpha hundur í öllum liðum“ Thiago Silva hættir hjá Chelsea en vonast til að synirnir spili þar áfram Tók sinn tíma að jafna sig Valsmenn spila fyrri leikinn á heimavelli Fullvissuð um það að íþróttafólk utan skápsins sé öruggt í Sádi Arabíu „Nú verður Edda brjáluð þegar ég hitti hana næst“ Mikil virðing fyrir Orra: Hárið stundum flækt en alltaf bros á vör Áfall fyrir Vestra: Eiður Aron brotinn og lengi frá Fyrstir í sautján ár til að vinna fjóra fyrstu leikina tvö ár í röð Tvær skráðar með sama númer á skýrslu og sú rétta fékk ekki markið Ákærður fyrir að slá barn sitt með blautu handklæði Saman á ný eftir súrrealískan dag: „Við erum eins og lím við hvorn annan“ Kári tók spaðann fram og vann tíunda titilinn Landsliðsmaður blandar sér í umræðuna um umdeilda sigurkörfu Njarðvíkinga Sjáðu dramatíkina í fyrsta grasleiknum á KR-vellinum og öll hin mörkin Liðsfélagarnir í sumarfríi en hann að vinna tólf tíma á dag á Íslandi Þurfti að eyða níu og hálfum tíma í leigubíl til að komast í burtu Hrósar Alberti en Inter þarf að safna fyrir honum Fyrstir áfram en þjálfarinn meiddist alvarlega þegar leikmaður hans lenti á honum Þjálfari Orra Steins sáttur: Hann hefur haldið kjafti Dagskráin í dag: Reykjavíkurslagur í Bestu, úrslitakeppni í Subway og NBA ásamt allskonar Hundraðasti sigur Arteta kom gegn erkifjendunum: „Stoltur af leikmönnunum“ „Hver karfa skiptir máli þannig að ég varð smá reiður“ Hetjan Orri Steinn eftir þrennuna: Besta tilfinning í heimi „Mér leið eins og ég væri í Keanu Reeves mynd“ „Röng ákvörðun af minni hálfu og ég tek fulla ábyrgð“ Uppgjör: Grindavík - Njarðvík 79-83 | Grænar stálu heimavellinum í Smáranum Sjá meira