Erlent

Lara Trump sögð vilja verða öldungadeildarþingmaður

Hólmfríður Gísladóttir skrifar
Lara flytur lofræðu um tengdaföður sinn á landsfundi Repúblikanaflokksins í haust.
Lara flytur lofræðu um tengdaföður sinn á landsfundi Repúblikanaflokksins í haust. epa/Chip Somodevilla

New York Times hefur eftir heimildarmönnum að Lara Trump, tengdadóttir Donald Trump, sé að velta því fyrir sér að bjóða sig fram til öldungadeildarinnar í Norður-Karólínu. Margir aðrir þungavigtarmenn innan repúblikanaflokksins eru sagðir hafa augastað á sætinu en flokksbróðir þeirra, Richard Burr, tilkynnti að hann myndi ekki sækjast eftir endurkjöri.

Kjörtímabili Burr lýkur árið 2022 en niðurstöður forsetakosninganna gefa til kynna að bæði repúblikanar og demókratar eigi séns á sætinu, þar sem Trump vann ríkið með aðeins 1,3% mun.

Lara og Eric eiga m.a. dótturina Karólínu, sem er nefnd eftir heimaríki Löru.epa/David Maxwell

Mercedes Schlapp, ráðgjafi í kosningateymi forsetans, ferðaðist með Löru þar sem hún mætti fyrir tendaföður sinn í aðdraganda kosninganna og segir hana vera mjög sjarmerandi og hafa nef fyrir stjórnmálum. Þá sé hún þekkt nafn í Norður-Karólínu, heimaríki sínu.

Hefur stutt forsetann í einu og öllu

Lara Trump er 38 ára og var áður einkaþjálfari og sjónvarpsframleiðandi. Hún giftist Eric Trump í Mar-a-Lago árið 2014. Menn hafa löngum velt vöngum yfir því hvort börn Donald Trump freisti þess að nýta sér þá stemningu sem Trump hefur myndað í bandarískum stjórnmálum og sækjast eftir opinberum embættum. En svo kann að fara að tengdadóttirin verði sú fyrsta sem lætur á það reyna að bjóða sig fram undir Trump-nafninu.

Einn helsti munurinn á Löru og Ivönku Trump, dóttur forsetans, er sá að Ivanka hefur upp að vissu marki haldið sig til hlés þegar faðir hennar hefur farið mikinn í að fordæma hinn og þennan, á meðan Lara hefur stutt forsetann með ráðum og dáðum. Hefur hún m.a. sagt að bandaríska kosningakerfið sé meingallað og sviksamlegt og gert úr því skóna að Joe Biden, kjörinn forseti, þjáist af heilabilun. 

Hin heilaga þrenning

Meðal þeirra repúblikana sem taldir eru líklegir til að falast eftir öldungadeildarsætinu eru Mark Walker, sem forsetinn hefur hvatt til að feta í fótspor Burr, og Pat McCrory, fyrrum ríkisstjóri. Þá hefur Mark Meadows, núverandi starfsmannastjóri Hvíta hússins, einnig verið nefndur til sögunnar.

Omarosa Manigault var meðal keppenda í raunveruleikaþættinum The Apprentice, þar sem Donald Trump rak mann og annan, og starfaði um tíma í Hvíta húsinu. Hún greindi hins vegar frá því árið 2018 að Lara hefði boðið sér 15 þúsund dali á mánuði fyrir að þegja um tíma sinn sem einn af ráðgjöfum forsetans.epa/Erik S. Lesser

Þrátt fyrir að búa að töluverðri reynslu í stjórnmálum þykir ljóst að enginn þessara kandídata er jafn þekktur og Lara í Norður-Karónlínu né eru þeir taldir geta safnað jafn miklu fé og hún. 

„Hún yrði magnaður kandidat,“ segir Kellyanne Conway, fyrrum ráðgjafi Donald Trump. „Hún býr að hinni heilögu þrenningu; hún getur aflað fjár, vakið athygli á helstu málefnum og vakið athygli á kosningabaráttu sinni. Ólíkt mörgum dæmigerðum stjórnmálamönnum þá tengir hún við fólk og er manneskja sem hlustað er á.“

Ítarlega frétt um málið má finna á nytimes.com.



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×