Leikmaður Liverpool að skrifa undir í París

Georginio Wijnaldum er að skrifa undir í Frakklandi.
Georginio Wijnaldum er að skrifa undir í Frakklandi. AFP

Hollenski knattspyrnumaðurinn Georginio Wijnaldum er að ganga til liðs við franska félagið París SG. Það er Fabrizio Romano, fréttamaður hjá Sky Sports, sem greinir frá þessu.

Wijnaldum mun skrifa undir þriggja ára samning við franska félagið en tilkynnt verður um skiptin á næstu klukkutímum.

Miðjumaðurinn kemur til félagsins frá Liverpool þar sem hann hefur leikið frá árinu 2016 en samningur hans í Bítlaborginni rennur út um næstu mánaðamót.

Wijnaldum hefur verið lykilmaður í liði Liverpool undanfarin ár en hann varð Evrópu- og Englandsmeistari með liðinu.

Alls lék hann 237 leiki fyrir félagið í öllum keppnum þar sem hann skoraði 22 mörk og lagði upp önnur sextán.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert