Handbolti

„Þú ert búinn að skipta þér af öllu“

Sindri Sverrisson skrifar
Anton Gylfi Pálsson fann sig knúinn til að taka Róbert Aron Hostert á eintal um miðjan seinni hálfleik í Vestmannaeyjum í gær.
Anton Gylfi Pálsson fann sig knúinn til að taka Róbert Aron Hostert á eintal um miðjan seinni hálfleik í Vestmannaeyjum í gær. Stöð 2 Sport

Kostuleg samskipti Róberts Arons Hostert, leikmanns Vals, og dómarans Antons Gylfa Pálssonar voru til umræðu í Seinni bylgjunni í gærkvöld eftir sigur Vals á ÍBV í undanúrslitum Olís-deildar karla.

Þetta var fyrri leikur einvígisins og skoraði Róbert tvö mörk í 28-25 sigri Vals.

Tvisvar í leiknum mátti heyra samtöl á milli Róberts og Antons, og í seinna skiptið var um hálfgerða skammarræðu að ræða frá dómaranum. Í fyrra skiptið var hins vegar létt yfir mönnum, eftir að Anton dæmdi aukakast á Val.

„Hvenær varðst þú sérfræðingur í dómgæslu elsku, besti vinur minn?“ spurði Anton eftir að Róbert hreyfði mótbárum við dómnum.

„Ég er hræðilegur í því sko,“ viðurkenndi Róbert léttur. „Já, ég held það. Frábær leikmaður en…“ sagði Anton sömuleiðis léttur í bragði eins og sjá má í myndskeiðinu hér að neðan.

Klippa: Samskipti dómarans og Róberts

Seinna í leiknum voru menn ekki eins brosandi en Róbert féll þá við og vildi sjá Ásgeir Snæ Vignisson fá tveggja mínútna brottvísun:

„Hann slær í hausinn á mér,“ sagði Róbert, og þá var Antoni nóg boðið:

„Hlustaðu bara á mig. Þú ert búinn að skipta þér af öllu,“ sagði Anton. „Já, ég veit,“ viðurkenndi Róbert strax. „Af mér, Jónasi [Elíassyni, dómara], öllum. Fókus á leikinn,“ sagði Anton.

„Ég biðst afsökunar á því,“ sagði Róbert en Anton vildi ekki hlusta á slíkt heldur halda leik áfram og fá Róbert til að einbeita sér að því að spila:

„Fókus!“ kallaði Anton.

Gríðarlega mikilvægt og getur breytt eldfimum aðstæðum

Henry Birgir Gunnarsson og sérfræðingar hans í Seinni bylgjunni höfðu gaman af samskiptum Antons og Róberts:

„Hann var eins og lítill skólastrákur þegar það var verið að skamma hann,“ sagði Henry.

„Þetta er eiginleiki góðra dómara, að geta haft samskipti við leikmenn inni á vellinum. Það er ótrúlega mikilvægt. Þetta bætir gæði leiksins og getur slökkt í mjög eldfimum aðstæðum,“ sagði Ásgeir Örn Hallgrímsson, og hélt áfram:

„Ef dómarinn stígur inn í aðstæður, og hefur eitthvað lag á því með því að segja til dæmis eitthvað fyndið, eins og hann var augljóslega að gera hér, getur það skipt gríðarlega miklu máli. Ég ber mikla virðingu fyrir þessu. Þeir eru líka að hjálpa leikmönnum; „Hættu þessu peysutogi. Ef þú gerir þetta einu sinni enn þá ertu farinn út af.“ Þeir eru að reyna að gera leikinn betri og ég kann virkilega að meta þetta.“


Tengdar fréttir

Umfjöllun: ÍBV - Valur 25-28 | Valsmenn fara með þrjú mörk úr Eyjum

Valur vann frábæran sigur á ÍBV í Vestmannaeyjum er liðin mættust í fyrri leik liðanna í undanúrslitum Olís-deildar karla í handbolta. Rosaleg dramatík átti sér stað undir lok leiks sem þýðir að Valur er þremur mörkum yfir fyrir síðari leik liðanna.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×