Viðskipti innlent

Telja að Hvalur þurfi að reiða fram rúmar hundrað milljónir eftir dóma Lands­réttar

Kristín Ólafsdóttir skrifar
Kristján Loftsson er framkvæmdastjóri og stærsti hluthafi Hvals.
Kristján Loftsson er framkvæmdastjóri og stærsti hluthafi Hvals. Getty/Arnaldur Halldórsson

Hvalur hf. var í Landsrétti í dag dæmdur til að leiðrétta laun og reiða fram greiðslur til átta starfsmanna sem unnu á hvalvertíðum hjá fyrirtækinu. Verkalýðsfélag Akraness, sem staðið hefur að dómsmálinu með starfsmönnunum, segir dóminn varða um hundrað starfsmenn, sem Hvalur muni samtals þurfa að greiða rúmar hundrað milljónir.

Dómarnir í málum starfsmannanna voru birtir á vef Landsréttar í dag. Málið má rekja allt til ársins 2015 en þá hófu starfsmennirnir málarekstur með hjálp Verkalýðsfélagsins gegn Hval hf. fyrir að hafa neitað að greiða svokallaða „sérstaka greiðslu“, sem kveðið hafði verið á um í ráðningarsamningi og kjarasamningi. 

Þá kröfðu starfsmennirnir Hval hf. um greiðslur fyrir lögbundna vikulega frídaga sem starfsmenn misstu vegna „mikils og stöðugs vinnuálags“, að því er fram kemur í tilkynningu verkalýðsfélagsins sem birt er á vef þess í dag.

Starfsmenn Hvals hf. verka hval í hvalstöðinni í Hvalfirði. Vísir/vilhelm

Annað mál um kröfur starfsmannanna var að endingu höfðað fyrir Héraðsdómi Vesturlands, sem sýknaði Hval hf. af kröfum starfsmannanna í fyrra. Málinu var áfrýjað til Landsréttar og með dómunum í dag er tekið undir kröfur starfsmanna að mestu leyti.

Hval hf. er gert að greiða starfsmönnunum „sérstaka greiðslu“ fyrir allar vaktir sem unnar voru á hvalvertíð árið 2015. Í einhverjum tilvikum þarf Hvalur að reiða fram greiðslurnar fyrir vaktir á hvalvertíð 2014 en var sýknaður af því að leiðrétta aðrar greiðslur fyrir vertíðar 2013 og 14.

Hvalur þarf einnig að rétta hlut starfsmanna sem ekki fengu lögboðinn vikulegan frídag á hvalvertíðum 2013, 2014 og 2015. Auk þess þarf fyrirtækið að greiða starfsmönnum dráttarvexti af skuldum sínum við starfsmenn frá 21. Júlí 2017 og málskostnað fyrir Landsrétti, að því er segir í tilkynningu Verkalýðsfélags Akraness.

„Það má áætla að þessi dómur muni skila þeim 100 starfsmönnum sem munu heyra undir dóminn rúmum 100 milljónum. Þótt þetta sé sigur að hafa tekist að snúa við sýknu dómi Héraðsdóms Vesturlands þá er það umhugsunar efni að atvinnurekendur skuli komast upp með launaþjófnað að hluta á grundvelli svokallaðs tómlætis!“ segir í tilkynningu.





Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×