Enski boltinn

Ederson með fleiri stoðsendingar en Bruno á móti „stóru sex“

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Bruno Fernandes hefur ekki veirð líkur sjálfum sér í leikjum Manchester United á móti hinum stóru liðunum í ensku úrvalsdeildinni.
Bruno Fernandes hefur ekki veirð líkur sjálfum sér í leikjum Manchester United á móti hinum stóru liðunum í ensku úrvalsdeildinni. AP/Dave Thompson

Bruno Fernandes hefur aðeins komið að einu marki í sjö leikjum á tímabilinu á móti stóru liðunum í ensku úrvalsdeildinni.

Bruno Fernandes var í gær einu sinni enn lítið áberandi í stórleik í ensku úrvalsdeildinni. Hann hefur margoft gert útslagið í leikjum Manchester United á móti minni liðum deildarinnar en á móti „stóru sex“ er lítið að frétta hjá Portúgalanum.

Besti leikmaður Manchester United á tímabilinu er komin með fimmtán mörk og ellefu stoðsendingar í fyrstu 26 deildarleikjunum og mikinn þátt í því að liðið er í öðru sætinu.

Bruno hefur verið orðaður við verðlaunin yfir besta leikmann leiktíðarinnar og það er því sláandi að velta fyrir sér slakri frammistöðu hans á móti stóru sex liðunum í deildinni.

Bruno náði aðeins að skapa eitt færi fyrir félaga sína í markalausa jafnteflinu á móti Chelsea í gær, hann náði ekki skoti á mark í leiknum og missti boltann til mótherja alls tuttugu sinnum.

Bruno Fernandes hefur nú spilað í 730 mínútur á móti stóru liðunum í deildinni, Manchester City, Liverpool, Chelsea, Arsenal og Tottenham, án þess að búa til mark í opnum leik.

Eina markið hans á móti „stóru sex“ kom úr vítaspyrnu í 1-6 stórtapi á móti Tottenham í október síðastliðnum.

Hann hefur ekki gefið eina stoðsendingu í þessum sjö leikjum sem þýðir að Ederson, markvörður Manchester City, hefur gefið fleiri stoðsendingar í leikjum á móti „stóru sex“ en Bruno Fernandes.

Fyrir vikið gengur ekkert hjá Manchester United að skora í þessum leikjum á móti hinum stóru liðum deildarinnar. Liðið hefur nú gert fjögur markalaus jafntefli í röð í slíkum leikjum en þeir hafa verið á móti Manchester City í desember, á móti Liverpool og Arsenal í janúar og svo á móti Chelsea í gær.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×