„Gott pláss fyrir bætingar“

Agla María Albertsdóttir í baráttu við Danielle Van De Donk …
Agla María Albertsdóttir í baráttu við Danielle Van De Donk í leik Íslands og Hollands í haust. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Agla María Albertsdóttir telur að íslenska kvennalandsliðið í knattspyrnu geti gert enn betur í síðari leik sínum gegn Kýpur í undankeppni HM 2023 á þriðjudag, en fyrri leiknum á Laugardalsvelli lauk með 5:0-sigri, sem flestir tengdir liðinu voru sammála um að hefði mátt vera stærri.

Leikurinn á þriðjudag fer fram á Kýpur, en íslenski hópurinn ferðaðist þangað frá Hollandi í gær.

„Það var langur ferðadagur hjá okkur í gær og í dag tekur raunverulega við undirbúningur fyrir leikinn við Kýpur. Þó að við höfum unnið fyrri leikinn 5:0 er klárlega gott pláss fyrir bætingar,“ sagði Agla María á Teams-fjarfundi með fréttamönnum í dag.

Sjálf vill hún gera betur og komast á blað gegn Kýpur fái hún tækifæri til, en hún fékk tvö mjög góð færi í 2:0-sigrinum gegn Japan í vináttulandsleik í Almere í Hollandi á fimmtudagskvöld en hafði ekki heppnina með sér í leiknum.

„Já það er engin spurning. Ef ég fæ tækifæri í liðinu á móti Kýpur ætla ég klárlega að reyna að skora. Það er bara svoleiðis,“ sagði Agla María.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert