Snorri Steinn: Blessaður vertu, þetta starf er bara áhyggjur Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 19. maí 2022 22:16 Snorri Steinn Guðjónsson eggjar sína menn áfram. vísir/hulda margrét Þrátt fyrir að Valur hafi rúllað yfir ÍBV í fyrsta leik úrslitaeinvígis Olís-deildar karla, 35-25, var Snorri Steinn Guðjónsson, þjálfari Valsmanna, með báða fætur kyrfilega á jörðinni í leikslok. „
Slökum aðeins á. Þetta er glæsilegur sigur, ekki spurning. Frábær frammistaða hjá mínum mönnum og fyrri hálfleikurinn mjög góður. En við þurfum líka að læra að höndla þetta og koma okkar fljótt niður á jörðina,“ sagði Snorri í samtali við Vísi eftir leik. „Þetta gefur okkur ekki neitt. Það er annar leikur, og öðruvísi leikur, sem bíður okkur í Vestmannaeyjum á sunnudaginn.“ Valur hafði beðið í ellefu daga eftir leik kvöldsins en þrátt fyrir það var ekkert ryð í Hlíðarendaliðinu. „Byrjunin var frábær, krafturinn var svakalegur og við náðum strax vopnum okkar sem gerði þetta svolítið þægilegt. Byrjunin var sterk og lagði grunninn að þessum sigri,“ sagði Snorri. „Hléið var langt en ég veit það ekki, ég velti mér ekkert upp úr þessu. Þetta var eins og þetta var og við þurftum að tækla það og gerðum það vel. Ef þetta hefði farið illa hefðum við getað talað eitthvað um þetta en erum við ekki bara búnir að því núna.“ Harkan í leiknum var mikil og dómararnir höfðu í nægu að snúast. „Þetta var fastur leikur, þetta eru úrslit, Valur og ÍBV, þannig að þetta kemur mér svo sem ekkert á óvart,“ sagði Snorri. Valur er kominn með frumkvæðið í einvíginu en erfiður leikur bíður Íslandsmeistaranna í Eyjum á sunnudaginn. Snorri segir að sínir menn verði með báða fætur á jörðinni í aðdraganda þess leiks. „Ég hef ekkert svakalega miklar áhyggjur af því. Það er annar leikur sem bíður okkar og öðruvísi leikur, það er alveg klárt mál. Við þurfum tvo sigra í viðbót og það eitt og sér á að vera nóg til að ná mönnum niður,“ sagði Snorri. Valur hefur unnið alla sex leiki sína í úrslitakeppninni. Þrátt fyrir það hefur Snorri áhyggjur. „Alltaf. Blessaður vertu, þetta starf er bara áhyggjur,“ sagði Snorri að lokum.
Olís-deild karla Valur Mest lesið Bakgarðshlaupið í beinni útsendingu Sport Kostar 600 þúsund að keppa með U18: „Þetta eru þakkirnar fyrir að spila fyrir landsliðið“ Handbolti Miðvarðamartröð Man United heldur áfram Enski boltinn „Veit ekki hvað Elmar þarf að gera til að komast í landsliðið“ Handbolti „Ég vona innilega að ég sé ekki að væla of mikið“ Íslenski boltinn „Höfum spilað vel án Arons áður“ Handbolti Loksins landaði Lando sigri í Formúlu 1 Formúla 1 Mitchell skaut Cleveland í undanúrslit Austursins Körfubolti Uppgjör og viðtöl: FH - ÍBV 34-27 | Aronslausir FH-ingar tryggðu sér sæti í úrslitum Handbolti „Ólíkir okkur að mörgu leyti“ Íslenski boltinn Fleiri fréttir „Höfum spilað vel án Arons áður“ „Veit ekki hvað Elmar þarf að gera til að komast í landsliðið“ Kostar 600 þúsund að keppa með U18: „Þetta eru þakkirnar fyrir að spila fyrir landsliðið“ Uppgjör og viðtöl: FH - ÍBV 34-27 | Aronslausir FH-ingar tryggðu sér sæti í úrslitum Guðmundur og Íslendingalið Ribe-Esbjerg í undanúrslit Afturelding einum sigri frá úrslitum Magdeburg á toppinn eftir stórleik Íslendinganna Fyrsta tap lærisveina Guðjóns Vals síðan í byrjun mars Öruggt hjá Teiti Erni og félögum HSÍ lengir bann Einars: „Framganga þjálfarans var mjög ógnandi og ódrengileg“ Grótta upp í Olís eftir sigur með minnsta mun í oddaleik Hætti óvænt: Fannst hann skulda fjölskyldunni smá tíma „Ég sakna hennar á hverjum degi“ Jóhanna Margrét frábær í góðum sigri Skara Viggó fór á kostum í góðum sigri Leipzig Reiður Einar hellti sér yfir eftirlitsdómarana Hættir eftir að hafa komið Fjölni upp „Við vorum bara ekki á svæðinu“ Metamfetamín fannst í báðum sýnum markmannsins Uppgjörið og viðtöl: Valur - Afturelding 39-25 | Valsmenn jafna einvígið með stórsigri PSG tókst ekki að leika ótrúlega endurkomu Kiel eftir Fjölnir tryggði sér sæti Olís deildinni á næsta tímabili Svekkjandi tap lækkar líkurnar hjá lærisveinum Arnórs Kielce kærir leikinn gegn Magdeburg Aron í myndatöku í dag vegna meiðslanna Sjáðu dramatísku vítakastskeppnina í Eyjum Elín Jóna færir sig á milli félaga á Jótlandi Ómar Ingi skaut Evrópumeisturunum áfram eftir vítakeppni „Féllu dómar í dag sem voru að mér fannst ansi augljósir“ Óheflaði Eyjapeyinn Kári Kristján: „Töpum aldrei í vítakeppnum“ Sjá meira