Sjöfaldi heimsmeistarinn í Formúlu 1, Lewis Hamilton, segist eiga mörg ár eftir af ferlinum. Keppinautur hans til margra ára, Fernando Alonso, er samningsbundinn fram yfir 45 ára afmælið sitt.
Hamilton yfirgefur Mercedes að loknu yfirstandandi keppnistímabili og tveggja ára samningur hans við Ferrari tekur gildi eftir fertugsafmæli ökuþórsins. Sjálfur segist Hamilton ekki finna fyrir aldrinum.
„Alonso er einn besti ökumaður í sögu íþróttarinnar og sú staðreynd að hann sé enn samkeppnishæfur sýnir að íþróttamenn eru enn að þróast og hvers mannslíkaminn er megnugur ef þú hugsar rétt um hann.“