Hertar aðgerðir í ósamræmi við traust á bólusetningum Óttar Kolbeinsson Proppé skrifar 19. júlí 2021 22:00 Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir, dómsmálaráðherra. Vísir Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir dómsmálaráðherra óttast að aðgerðir innanlands verði hertar á ný þegar tilefni til þess sé ekki endilega til staðar. Hún virðist ekki sannfærð um réttmæti þeirra aðgerða á landamærunum sem kynntar voru í dag. „
Að mínu mati stingur þetta aðeins í stúf við traust okkar á bólusetningum og vonir mínar persónulega, sem stóðu til þess að þegar búið væri að bólusetja eins marga og við mögulega getum hérlendis, að þá stæði ekki ógn af bólusettu fólki sem ferðaðist hingað,“ sagði Áslaug Arna, sem var gestur í þættinum Reykjavík síðdegis á Bylgjunni í dag. „Auðvitað er maður alltaf að reyna að horfa til þess að koma lífinu aftur í samt horf, hvort sem það er innanlands eða við landamærin. Og það sem maður hefur kannski áhyggjur af er að þessi rök yrðu síðan einnig notuð til að fara í innanlandstakmarkanir, þegar staðan er bara orðin önnur,“ sagði hún. Næsta verkefni að meta áhrif veirunnar á bólusetta Aðgerðirnar sem voru kynntar í morgun felast í því að allir sem koma til landsins verði að sýna fram á neikvætt próf við Covid-19, einnig þeir sem eru fullbólusettir. Þær taka gildi eftir viku. „Það sem maður spyr sig að er auðvitað bara hvort að reynsla landa sem eru komin langt í bólusetningu viðkvæmra hópa, til dæmis, gefi tilefni til að ætla að álag á heilbrigðiskerfið og útbreiðsla veikindanna réttlæti að nýju umfangsmiklar sóttvarnaráðstafanir. Og það er auðvitað það nýja mat sem að þarf að fara fram; hversu skæð veiran er á bólusett fólk miðað við hvernig hún var þegar bólusetningar voru ekki inni í myndinni,“ sagði Áslaug. Jóhannes Þór Skúlason, framkvæmdastjóri Samtaka ferðaþjónustunnar, gagnrýndi ríkisstjórnina í samtali við Vísi í dag eftir að aðgerðirnar voru kynntar. Hann sagði ákvörðunina mikil vonbrigði, fólki í ferðaþjónustunni fyndist hún óskiljanleg og loks að ríkisstjórnin hefði ekki staðið í lappirnar gagnvart sóttvarnarlækni í þessu máli. Innt eftir viðbrögðum við gagnrýni Jóhannesar sagði Áslaug: „Þarna var auðvitað farin mildari leið en lögð var til með því að samþykkja líka hraðpróf, sem er talsvert aðgengilegra að fá og ódýrara fyrir fólk. Að sama skapi bind ég auðvitað vonir við það að þessar aðgerðir sé óþarfi en hafi líka ekki of mikil áhrif á þá sem vilja koma hingað til landsins.“ Þó virðist hún óttast að hið gagnstæða muni gerast því síðar í þættinum sagðist hún telja að álag á starfsfólk Keflavíkurflugvallar myndi ekki aukast: „Ég myndi telja að með þessu yrði líklega einhver fækkun í komum hingað. Það eru ekki mörg ef eitthvað land með auknar kröfur á bólusetta ferðamenn,“ sagði hún. „Það er spurning hvort að Ísland verði enn þá jafn spennandi valkostur eftir þessar ákvarðanir.“
Faraldur kórónuveiru (COVID-19) Bólusetningar Ferðamennska á Íslandi Tengdar fréttir „Algjörlega galið“ að herða tökin á landamærunum frá sjónarhóli ferðaþjónustunnar Jóhannes Þór Skúlason, framkvæmdastjóri Samtaka ferðaþjónustunnar, segir að frá sjónarhóli ferðaþjónustunnar og þeirri efnahagslegri viðspyrnu sem fjölgun ferðamanna hér á landi veiti sé það „algjörlega galið" ætli stjórnvöld sér að herða tökin á landamærunum, líkt og sóttvarnalæknir hefur í hyggju að leggja til að verði gert. 16. júlí 2021 14:36 Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur. Mest lesið Staldraði við þegar talað var um fóstur sem frumuklasa Innlent Einhver í herberginu segi ekki satt Innlent Spánverjar neita skipi með vopn innanborðs um að leggja að bryggju Erlent Svona voru kappræður sex efstu í baráttunni um Bessastaði Innlent Treysta sér til þess að vernda þjóðkirkjuna Innlent Katrín tekur forystuna á ný og Halla T í sókn Innlent Skipstjórinn gistir fangageymslur ásamt stýrimanni Innlent Kviknaði í bensínbíl í akstri á Dalbraut Innlent „Við erum ekki hlutlaus þjóð“ Innlent Magnús Geir vill fimm ár í viðbót í Þjóðleikhúsinu Innlent Fleiri fréttir Baldur vinsælasta plan B Bein útsending: MenntaStefnumót í Reykjavík Treysta sér til þess að vernda þjóðkirkjuna Magnús Geir vill fimm ár í viðbót í Þjóðleikhúsinu Telur ekki óeðlilegt að sýna mótmælendum samstöðu Staldraði við þegar talað var um fóstur sem frumuklasa Skipstjórinn gistir fangageymslur ásamt stýrimanni Kviknaði í bensínbíl í akstri á Dalbraut Einhver í herberginu segi ekki satt „Við erum ekki hlutlaus þjóð“ Katrín tekur forystuna á ný og Halla T í sókn Vendingar í nýrri könnun og mannbjörg á ögurstundu Svona voru kappræður sex efstu í baráttunni um Bessastaði Spyr hvort eðlilegt sé að ráðherrar taki þátt í erlendum mótmælum Viktor hvetur forsetaframbjóðendur til að sniðganga Stöð 2 Skipstjórinn og tveir stýrimenn handteknir vegna sjóslyssins Óvinnufær eftir harkalegt fall þegar strappur slitnaði Skipuð aðstoðarlögreglustjóri á höfuðborgarsvæðinu Valdimar Hermannsson nýr sveitarstjóri Vopnafjarðarhrepps Bjarni ætlar að geta Katrínar í formálanum Þórey í Konukoti hlaut mannréttindaverðlaun Reykjavíkur Nafnið Hroði of hroðalegt Fékk sting í hjartað þegar hann sá nafnið á bátnum Um 920 mál óafgreidd hjá kærunefnd útlendingamála Færa almannavarnastig niður á óvissustig vegna vatnslagnarinnar Fólk muni ekki borga 200 þúsund fyrir „heimili sem það notar sem sumarbústað“ Vísbending um að flutningaskip hafi hvolft bátnum Skikkar lögreglu til að rannsaka stjórn aðventista Sjóslys, Þórkatla og framtíð Play Kvikusöfnunin áfram stöðug Sjá meira
„Algjörlega galið“ að herða tökin á landamærunum frá sjónarhóli ferðaþjónustunnar Jóhannes Þór Skúlason, framkvæmdastjóri Samtaka ferðaþjónustunnar, segir að frá sjónarhóli ferðaþjónustunnar og þeirri efnahagslegri viðspyrnu sem fjölgun ferðamanna hér á landi veiti sé það „algjörlega galið" ætli stjórnvöld sér að herða tökin á landamærunum, líkt og sóttvarnalæknir hefur í hyggju að leggja til að verði gert. 16. júlí 2021 14:36