Hyggjast heilla Harvard um helgina: „Vonumst til að fá fleiri íslenska leikmenn“ Hjörtur Leó Guðjónsson og Valur Páll Eiríksson skrifa 4. febrúar 2023 09:01 Mark McDevitt, þjálfari kvennaliðs Harvard-háskóla. Vísir/Arnar Íslenska fyrirtækið Soccer & Education stendur að sérstökum sýningarleik um helgina þar sem íslenskt knattspyrnufólk fær tækifæri til að sýna listir sínar fyrir þjálfurum bandarískra háskólaliða. Þjálfarar frá Boston College og Harvard fara fögrum orðum um íslenska leikmenn.
Soccer & Education USA var stofnað árið 2015 og hefur hjálpað fjölda Íslendinga að finna sér háskólastyrk vestanhafs í gegnum fótboltann. Viðburðir sem þessi í Miðgarði í Garðabæ um helgina hjálpar þar mikið til. En hversu mörgum er búist við á staðnum? „Við erum að reikna með að þetta verði svona í kringum 120 leikmenn, stelpur og strákar,“ sagði Brynjar Benediktsson, stofnandi og framkvæmdastjóri fyrirtækisins, í Sportpakkanum í gær. Klippa: Íslendingar fengið styrkfé upp á fimm milljarða „Varðandi þjálfarana, þá er það fyndna við það að þeir eru enn að bóka sig. Það er náttúrulega svo auðvelt að fljúga hingað frá Boston og New York. En við erum að vona að þetta verði í kringum 40-50 þjálfarar sem horfa um helgina.“ „En síðan tökum við þetta upp með fjórum myndavélum og sendum þetta síðan út, unnið eins og leik í Bestu-deildinni, til Bandaríkjanna. Þannig að verða fullt af augum að horfa á krakkana um helgina.“ Brynjar Benediktsson lék sjálfur með Clemson University í Bandaríkjunum og aðstoðar nú unga leikmenn að fá skólastyrki þar í landi.Vísir/Arnar Aðspurður að því hversu margir krakkar hafi farið út á styrkjum í gegnum fyrirtækið segir Brynjar: „Í kringum 450 leikmenn sem við höfum aðstoðað og það er náttúrulega að vaxa á hverju ári. Í fyrra fór 71 leikmaður og styrkirnir í kringum fimm milljarða hjá þessum leikmönnum. Og ég held að á næsta ári fari enn fleiri út þannig það er bara skemmtilegt.“ segir Brynjar. Harvard vill fleiri Íslendinga vegna árangurs Mundu og Hildar Þjálfarar hjá bæði Boston College og Harvard eru komnir til landsins að fylgjast með leikmönnum um helgina og eru á meðal yfir 40 þjálfara hjá bandarískum háskólum sem verða í Miðgarði um helgina. „Þessi viðburður hefur nýst okkur afar vel. Við höfum haft þrjá framúrskarandi leikmenn hjá Boston College á undanförum sjö til átta árum; Heiðar Ægisson, Stefán Ingi Sigurðarson og Kristófer Konráðsson, sem hafa allir leikið hér á Íslandi eftir útskrift,“ segir Bob Thompson, þjálfari karlaliðs Boston College. Heiðar og Kristófer eru báðir uppaldir hjá Stjörnunni en Heiðar lék með Val í Bestu-deild karla síðasta sumar, Kristófer lék með Leikni síðari hluta sumars er Breiðhyltingar féllu. Stefán Ingi er uppalinn hjá Breiðabliki en lék stórvel á láni hjá HK er liðið fór upp úr Lengjudeildinni síðasta sumar. Bob Thompson, þjálfari karlaliðs Boston College.Vísir/Arnar „Þetta hefur því haft mikið að segja. Allir þrír leikmenn voru leiðtogar í liðum okkar og höfðu sérstaka hæfileika,“ segir Thompson. Mark McDevitt, þjálfari kvennaliðs Harvard, þjálfar þar bæði Áslaugu Mundu Gunnlaugsdóttur og Hildi Þóru Hákonardóttur. Fleiri íslenskir leikmenn eru svo á leiðinni í skólann. „Þetta hefur skilað okkur miklu. Áslaug [Munda Gunnlaugsdóttir] og Hildur [Þóra Hákonardóttir] eru hjá okkur núna. Þær hafa verið magnaðar á vellinum og mjög góðar í kennslustofunni. Árangur þeirra hefur leitt til þess að fleiri eru á leið til okkar og við vonumst til að fá fleiri íslenska leikmenn þegar fram líða stundir,“ segir McDevitt. Þær Áslaug og Hildur eru báðar leikmenn Breiðabliks en sú fyrrnefnda er einnig fastakona í íslenska landsliðshópnum. Mark McDevitt, þjálfari kvennaliðs Harvard-háskóla.Vísir/Arnar Ekkert land skilað eins miklu af sér til starfsins En hvað er það sem aðskilur íslenska leikmenn frá öðrum? „Ég tel að íslensku leikmennirnir okkar hafi skilað okkur mun meiru en leikmenn frá öðrum löndum á síðustu sjö árum. Ég held að ástæðan sé hugarfar þeirra. Þeir eru hæfileikaríkir en þeir hafa sýnt fagmennsku þegar þeir koma hingað, verið góðir liðsfélagar og miklir leiðtogar. Persónuleiki leikmanna sem hafa komið hingað hefur verið sérstakur,“ segir Thompson. „Þau eru mjög vinnusöm og eru viljug til að bæta sig. Svo er skólakerfið hér mjög gott, enskukunnáttan er góð og þau stefna einbeitt að því að ná árangri - bæði innan vallar og í skólastofunni,“ segir McDevitt sem var þá spurður um hvort hann og Harvard muni einblína enn frekar á Ísland í framtíðinni? „Já, vonandi. Reynslan hingað til er góð,“ segir McDevitt.
Fótbolti Háskólar Bandaríkin Mest lesið Stuðningurinn ómetanlegur: „Farið í dýpstu leyndarmálin“ Sport Rekinn þrátt fyrir að vera tilnefndur sem þjálfari ársins Enski boltinn Stórveldi með gjörólíka hugmyndafræði berjast um sæti í úrslitum Fótbolti Sjáðu Hummels gera það sem Mbappé og félögum tókst ekki Fótbolti „Dómur þarna í restina sem ákveður úrslitin“ Körfubolti Gummi Ben og félagar tímamældu leiktafir KR-ingsins Íslenski boltinn Ræðir veru sína í rússnesku fangelsi í nýrri bók Körfubolti Aþena upp í Subway-deildina Körfubolti „Gamaldags boxbardagi frá fyrstu mínútu“ Körfubolti Gat ekki staðið upp til að taka við bikarnum Sport Fleiri fréttir Sjáðu Hummels gera það sem Mbappé og félögum tókst ekki Stórveldi með gjörólíka hugmyndafræði berjast um sæti í úrslitum Rekinn þrátt fyrir að vera tilnefndur sem þjálfari ársins „Höfum vaxið með hverjum leik“ Dortmund í úrslit eftir sigur í París Telja að Man United hafi saknað leiðtogahæfileika Martínez Þurfa leyfi til að taka þátt í Meistaradeild Evrópu á næstu leiktíð Arnar í tveggja leikja bann Aðeins einn uppalinn Valsmaður í Bestu deild karla „Maður hefur verið milli tannanna á fólki síðan maður var ungur“ „Tveir Víkingar? Ég er bara hissa“ Adam hundfúll og Arnar beint í símann Vatnstjónið vísar Stólum til Akureyrar Forest í bullandi fallhættu vegna bulls í fjármálum Napoli í kapphlaupið um Albert Segir að Viðar hafi ekki mætt á æfingu á leikdegi Segir að Casemiro hafi verið aðhlátursefni gegn Palace Sjáðu aukaspyrnumark Gylfa, umdeildan rangstöðudóm og rauðu spjöldin „Síðasti naglinn í kistu Ten Hag“ „Arnar fór langt yfir strikið“ en nafni hans oftar með dónaskap Bielsa ætlar að velja áhugamann í landsliðshóp Úrúgvæ Ten Hag: Leikmennirnir hefðu átt að halda áfram að berjast líkt og stuðningsfólkið „Segir þeim að hætta þessu fokking rugli“ „Höfum engu að tapa núna“ Hákon Arnar fékk gult þegar Lille henti frá sér unnum leik Uppgjör, viðtöl og myndir: Breiðablik - Valur 2-3 | Manni færri héldu gestirnir út Crystal Palace lék sér að Man United Van Dijk vill hjálpa til við að skrifa næsta kafla Liverpool Sara Björk hafði betur gegn Alexöndru Eyddi öllum Liverpool-myndum Sjá meira