Rándýrt að auglýsa í Reykjavík Snorri Másson skrifar 22. september 2021 21:00 Auglýsingar frá stjórnmálaflokkum hafa ekki farið framhjá einum einasta manni síðustu daga. Eða hann þyrfti alla vega að hafa komið sér kirfilega fyrir í helli til þess að sleppa við þær. Vísir/Egill Íslenskir stjórnmálaflokkar hafa keypt auglýsingar á Facebook fyrir rúmlega 24 milljónir króna undanfarið ár. Auglýsingar á samfélagsmiðlum eru þó aðeins brotabrot af útgjöldum flokkanna til markaðssetningar.
Það færist hiti í leikinn í kosningabaráttunni. Facebook og dótturfyrirtæki þess Instagram njóta góðs af en íslenskir fjölmiðlar og skiltaeigendur þó enn frekar. Miðflokkurinn er helsta eyðsluklóin á Facebook með 3,2 milljónir en fast á hæla þeirra fylgir Flokkur fólksins með rúmar 2,7. Píratar eru áberandi eyðslugrannir og hafa aðeins eytt tæpum 148 þúsund krónum á aðalsíðu sinni í kosningabaráttunni. Flokkurinn hefur þar eytt minna en til dæmis Ásmundur Einar Daðason einn og sér, sem hefur eytt rúmri hálfri milljón á síðasta mánuði. Ítarlega umfjöllun Stöðvar 2 má sjá hér: „Við erum auðvitað að sjá stóru flokkana, þessa rótgrónu sem hafa verið lengi í þessu, að þeir eru passasamari. Það má kannski líkja þessu við stórfyrirtæki sem er með skýra stefnu um það hvernig þeir koma öllu út. Á meðan hafa litlu flokkarnir meira um að berjast að koma sér inn og meira að sanna, þeir eru að fara út fyrir kassann og gera eitthvað aðeins öðruvísi, sem er kannski að vekja eftirtekt,“ sagði Sigurður Svansson, einn eigenda auglýsingastofunnar Sahara, kvöldfréttum Stöðvar 2. Sigurður Svansson auglýsingamaður.Vísir/Egill Peningar til Facebook og Instagram fara úr landi eins og gefur að skilja, sem er auðvitað ekki óumdeilt. Brúnin ætti þó aðeins að léttast á andstæðingum slíkra fjárútláta þegar litið er til þess, að töluvert meira fé er varið í innlendar auglýsingar. Gísli Rafn Ólafsson, kosningastjóri Pírata og frambjóðandi í öðru sæti á lista flokksins í Suðvesturkjördæmi, segir meðvitaða ákvörðun að verja aðeins fjórðungi auglýsingafjár flokksins í erlenda samfélagsmiðla, enda sé það ábyrgðarhluti að styðja við íslenska fjölmiðla. Þó séu útgjöld flokksins á Facebook ekki eins lítil og virðist í fyrstu, enda sé þeim dreift á ólíkar síður á vegum Pírata. Mörg hundruð þúsund krónur fyrir sólarhringinn Fréttastofan fór á stúfana um bæinn, fletti í dagblöðum og las vefmiðla - og komst að raun um að það er ekki ódýrt að auglýsa eins og flokkarnir gera nú um mundir. Það eru um 300 strætóskýli í bænum og að birtast þar á mínútufresti kostar um fjögur hundruð þúsund krónur á dag, samkvæmt upplýsingum fréttastofu. Við þetta bætist síðan um 90 þúsund króna vaskur. Það eru um tuttugu auglýsingaskjáir í bænum og að fara á þá alla á mínútufresti kostar líka um fjögur hundruð þúsund kall á dag. Píratar verja aðeins 25% af auglýsingafé sínu í samfélagsmiðlaauglýsingar. Heilsíða í íslensku dagblaði getur kostað um 200 þúsund krónur og svipað gildir um borða á mest lesna vefmiðli landsins, Vísi. Við þetta bætast svo sjónvarps- og útvarpsauglýsingar og ljóst að veltan er talsverð. Sem betur fer sitja stjórnmálaflokkarnir á digrum sjóðum, sem eru vel að merkja að uppistöðu fjármagnaðir með skattfé. Nánar tiltekið sífellt meira skattfé: Framlög úr ríkissjóði til stjórnmálaflokka nema 728 milljónum í ár, þar af fékk Sjálfstæðisflokkurinn 173 milljónir í samræmi við um 24% fylgi. Þessi útgjöld hafa margfaldast á síðustu árum: Fyrir fimm árum námu þau aðeins um 286 milljónum samtals til allra flokka.
Auglýsinga- og markaðsmál Alþingiskosningar 2021 Píratar Samfélagsmiðlar Reykjavík Fjölmiðlar Tengdar fréttir Fékk kökk í hálsinn yfir „bestu auglýsingunni“: Trúverðugt að Katrín sé komin í þvottahúsið Álitsgjafar Pallborðsins voru á einu máli um ágæti sjónvarpsauglýsingar Vinstri grænna, þar sem daglegt líf frambjóðenda flokksins er í forgrunni við tilfinningaþrungið undirspil íslenskrar tónlistar. 21. september 2021 17:38 Senuþjófar kosningabaráttunnar Nú þegar kosningabaráttan fyrir Alþingiskosningar 2021 fer að nálgast sinn hápunkt er ekki úr vegi að horfa yfir sviðið og reyna að glöggva sig á því hvaða frambjóðandi er sá svarti senuþjófur sem hefur náð að sópa til sín mestu af hinni dýrmætu athygli sem allt snýst um á tímum sem þessum. Þrír einstaklingar teljast ótvíræðir sigurvegarar. En óhætt að segja að þeir hafi farið sitthverja leiðina að því marki. 18. september 2021 10:00 Segir stjórnmálamenn þjakaða af ranghugmyndum um fjölmiðla Sigríður Dögg Auðunsdóttir, formaður Blaðamannafélags Íslands, segir að oft hafi verið þörf en nú nauðsyn að vekja stjórnmálamenn til vitundar um að forsenda lýðræðis sé upplýst afstaða. 9. september 2021 11:52 Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur. Mest lesið Grindvíkingar borgi allt að þriðjungi hærri leigu en aðrir Viðskipti innlent Dýrmætustu og sjaldgæfustu Mustang bílar landsins á afmælissýningu Mustang Samstarf Krónísk óstundvísi: Skýringar og góð ráð Atvinnulíf Guðný og Sigurður Helgi til SI Viðskipti innlent Arnar Már nýr aðstoðarforstjóri Viðskipti innlent Tekur við stöðu sviðsstjóra Netöryggismiðstöðvar Íslands Viðskipti innlent Tekjur Apple drógust saman enn eina ferðina Viðskipti erlent „Ég var skíthrædd að senda þessa tölvupósta“ Atvinnulíf Mun bjóða upp á sömu flugáætlun og Bláfugl áður Viðskipti innlent Sjö vilja taka við af Gunnari Viðskipti innlent Fleiri fréttir Grindvíkingar borgi allt að þriðjungi hærri leigu en aðrir Guðný og Sigurður Helgi til SI Tekur við stöðu sviðsstjóra Netöryggismiðstöðvar Íslands Hagnaður Íslandsbanka 5,4 milljarðar á fyrsta fjórðungi Arnar Már nýr aðstoðarforstjóri Vinnunetföng algeng leið fyrir hakkara til að brjótast inn í íslensk fyrirtæki Sjö vilja taka við af Gunnari Hagnaður Landsbankans nam 7,2 milljörðum á fyrstu þremur mánuðum ársins Frumkvöðlar koma saman í Kolaportinu Hefja sölu á íbúðum á Orkureitnum Bein útsending: Stærri styrktækifæri í mannvirkjaiðnaði Lokar Önnu Jónu og segir það mikinn létti Hagnaður Arion dróst saman um tvo milljarða Hefja úthlutun lóða í Vatnsendahvarfi Ráðherra bað um tíu milljarða króna í viðbót í arð Bein útsending: Eftirfylgni við Stöðugleikasamninginn Landa stórum sölusamningi Reginn afturkallar samrunatilkynningu við Eik Vextir verði ekki lækkaðir fyrr en í haust Hafa tryggt útgáfu íslenska tölvuleiksins Island of Winds Verðbólgan úr sex prósentum í ár í 3,5 prósent árið 2026 Vilja gera tilraunir með orkuframleiðslu í geimnum á Íslandi Reksturinn þungur í kjölfar „yfirgangs og afskipta lögreglu“ Fjármálastjóri Play segir upp Tryggðu sér 300 milljóna króna fjármögnun Skelltu líka í lás á Exit og í Nýju vínbúðinni Innsigla B5 að kröfu Skattsins Töpuðu þremur milljörðum á fyrsta ársfjórðungi Farsímatekjur undir væntingum Hæstiréttur sker úr um hvort taka hafi mátt bjór úr hillum Sjá meira
Fékk kökk í hálsinn yfir „bestu auglýsingunni“: Trúverðugt að Katrín sé komin í þvottahúsið Álitsgjafar Pallborðsins voru á einu máli um ágæti sjónvarpsauglýsingar Vinstri grænna, þar sem daglegt líf frambjóðenda flokksins er í forgrunni við tilfinningaþrungið undirspil íslenskrar tónlistar. 21. september 2021 17:38
Senuþjófar kosningabaráttunnar Nú þegar kosningabaráttan fyrir Alþingiskosningar 2021 fer að nálgast sinn hápunkt er ekki úr vegi að horfa yfir sviðið og reyna að glöggva sig á því hvaða frambjóðandi er sá svarti senuþjófur sem hefur náð að sópa til sín mestu af hinni dýrmætu athygli sem allt snýst um á tímum sem þessum. Þrír einstaklingar teljast ótvíræðir sigurvegarar. En óhætt að segja að þeir hafi farið sitthverja leiðina að því marki. 18. september 2021 10:00
Segir stjórnmálamenn þjakaða af ranghugmyndum um fjölmiðla Sigríður Dögg Auðunsdóttir, formaður Blaðamannafélags Íslands, segir að oft hafi verið þörf en nú nauðsyn að vekja stjórnmálamenn til vitundar um að forsenda lýðræðis sé upplýst afstaða. 9. september 2021 11:52