Leikkonan Afshan Azad þakkaði rithöfundinum J.K. Rowling fyrir allt á 20 ára afmæli fyrstu Harry Potter kvikmyndarinnar. Azad fór með hlutverk Pödmu Patil í kvikmyndunum sem byggðar eru á bókum Rowling.
Á þriðjudag í síðustu viku voru 20 ár liðin frá því að fyrsta kvikmyndin var frumsýnd. „Þegar Viskusteinninn kom út var ég dregin inn í galdraheiminn eins og öll önnur. Þá vissi ég ekki að ég myndi fara í áheyrnarpufu fyrir hlutverk sem myndi breyta öllu mínu lífi nokkrum árum seinna. Ég á J. Rowling, þeim sem völdu mig í hlutverk og Potter kvikmyndunum allt að þakka,“ skrifaði Azad.
Tist Azad hefur vakið töluverða athygli en Rowling var harðlega gagnrýnd fyrir skoðanir sínar á transfólki á síðasta ári. Þá verður hún ekki hluti af hátíðarhöldum í tilefni af 20 ára afmælinu en stefnt er að því að leikararnir snúi aftur til Hogwarts skólans á nýju ári.
Aðalleikararnir þríar, Daniel Radcliffe, Rupert Grint og Emma Watson hafa öll gagnrýnt Rowlin opinberlega en þau fóru með hlutverk Harry Potters, Rons Weasley og Hermione Granger í myndunum.
Watson fagnaði afmælinu á Instagram-síðu sinni í síðustu viku og minntist ekki einu orði á Rowling. Færslan var gagnrýnd í kjölfarið og skrifaði blaðamaðurinn Sarah Ditum harðorða skoðanagrein í The Telegraph þar sem hún spurði hvernig leikararnir voguðu sér að minnast ekki á Rowling, það væri henni að þakka að þau væru rík.
Radcliffe hefur þó ekki smættað hlutverk Rowling en í heimildamynd fyrir BBC um gerð Harry Potter sagði hann hana gáfaða, fyndna og góða manneskju.