Röskun á áætlun skemmtiskipa

Gámum var raðað við bráðabirgðamóttökuhús Faxaflóahafna til að verja það …
Gámum var raðað við bráðabirgðamóttökuhús Faxaflóahafna til að verja það fyrir vindi. Ljósmynd/Gísli J. Hallsson

Óveðrið síðustu daga hefur raskað nokkuð áætlunum stórra skemmtiferðaskipa sem komin voru til landsins. Sky Princess, eitt stærsta skemmtiferðaskip sem hingað kemur í sumar, sneri frá landinu eftir stutta viðkomu á höfnum á norðanverðu landinu og sigldi til Englands.

Annað stórt skip, Norwegian Prima, kom ekki við á áformuðum áfangastöðum á Vesturlandi heldur lónaði úti fyrir Vestfjörðum en var væntanlegt til Reykjavíkur í nótt.

Ákvað að sigla beint til Reykjavíkur

Breytingar á áætlunum skipanna hafa raskað nokkuð áætlunum hafnanna og fyrirtækjanna sem veita útgerðunum og farþegunum þjónustu. Búið var að boða skipti á farþegum Norwegian Prima, alls rúmlega 3.200 manns, við Skarfabakka í gærmorgun.

Starfsmenn Faxaflóahafna voru tilbúnir með viðeigandi búnað til að gera það mögulegt og nýju farþegarnir komnir til landsins þegar áætlun skipsins breyttist. Skipstjórinn ákvað að sleppa viðkomu í einhverjum höfnum og sigldi til Reykjavíkur í gær. Áformuð koma þangað var á þriðja tímanum í nótt og skipið heldur síðan sína leið síðdegis í dag.

Gerðu ráðstafanir vegna vindsins

Faxaflóahafnir eru með bráðabirgðaaðstöðu til að afgreiða farþega skemmtiferðaskipa, sérstaklega við farþegaskipti, á Skarfabakka. Var aðstaðan styrkt með því að gámum var raðað við tjöldin til að brjóta niður vindinn og loðnunætur voru settar ofan á tjöld til að styrkja þau.

Nán­ar er fjallað um málið í Morg­un­blaðinu í dag.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert