Oddvitar í Reykjavík teknir tali á kjörstað: „Ég er með svona fiðrildi í maganum“ Árni Sæberg skrifar 14. maí 2022 21:17 Borgarstjóri var glabeittur þegar hann kom á kjörstað með fjölskyldu sinni. Vísir/Vilhelm Meirihlutinn í borgarstjórn stendur afar tæpt samkvæmt könnunum. Framsókn og Sósíalistar útiloka ekki að þeir gætu starfað með meirihlutaflokkunum þó mestur samhljómur virðist vera með oddvitum Framsóknar og Sjálfstæðisflokks.
Oddvitar flokkanna voru flestir mættir snemma á kjörstað í morgun og fréttamenn okkar tóku þá tali. Dagur B. Eggertsson borgarstjóri var spenntur þegar hann mætti á kjörstað. „Ég er með svona fiðrildi í maganum, bara bjartsýnn, skemmtileg kosningabarátta, mikið af orkumiklu ungu fólki sem hefur unnið með okkur,“ segir hann. Þjóðarpúls Gallup mældi meirihlutann fallinn í gær. Dagur vonar að núverandi samstarf haldi áfram. „Ef meirihlutinn heldur þá setjumst við niður ef hann gerir það ekki þá verður bara að skoða stöðuna í nýju ljósi,“ segir Dagur. Sósíalistar vilja vera með Þarna er Líf Magneudóttir, oddviti Vinstri grænna, sammála borgarstjóranum. „Ef að meirihlutinn heldur þá er okkar fyrsta val að starfa áfram saman og þá setjast niður og ræða samstarfsfletina. En við þurfum bara að bíða og sjá hvað kemur úr kjörkössunum sko. Þetta verður löng nótt,“ segir hún. Hún útilokar þó ekki samstarf með Framsóknarflokknum eða Sósíalistum. „Mér líst bara vel á það ef að við náum góðum málefnasamningi,“ segir Líf. En hvernig líst Sósíalistum á að ganga inn í núverandi meirihluta? „Ég einmitt kom með þessa spurningu í kosningasjónvarpi og það var ljóst að Dagur var bara mjög ánægður með þennan meirihluta en ég er bara mjög spennt að ræða við fólkið mitt,“ segir Sanna Magdalena Mörtudóttir, oddviti Sósíalistaflokksins. Viðreisn til í allt en ekki Píratar Oddviti Viðreisnar veltir fyrir sér möguleikum ef meirihlutinn skyldi ekki halda. „Við í Viðreisn getum starfað með öllum... og meira að segja Sósíalistum sem að vilja ekki starfa með okkur. En við höfum fulla trú á að við getum starfað með þeim líka,“ segir Þórdís Lóa Þórhallsdóttir, oddviti Viðreisnar. Viðreisn vill greinilega vinna með hverjum sem er en það geta Píratar ekki hugsað sér. „Við höfum útilokað Sjálfstæðisflokkinn einn flokka. En öðrum getum við örugglega fundið einhvern samflöt með,“ segir Dóra Björt Guðjónsdóttir, oddviti Pírata. Einar hefur ekki leitt hugann að borgarstjórastólnum Framsóknarflokkurinn mælist í stórsókn í öllum síðustu könnunum. Flokkurinn hefur ekki átt mann í borgarstjórn síðasta kjörtímabil en mælist með fjóra inni. Einar Þorsteinsson, oddviti Framsóknarflokksins og ótvíræður sigurvegari kosninganna, ef marka má skoðanakannanir, segist ekki hafa leitt hugann mikið að borgarstjórastólnum. „Veistu ég held að það sé ekkert skynsamlegt að vera að láta sig dreyma eitthvað. Það bara kemur í ljós. Ég meina ég er alveg tilbúinn að axla þá ábyrgð ef að það fer svoleiðis,“ segir hann. Hann er þó staðráðinn í því að vilja Framsókn í meirihluta. „Við viljum taka þátt í meirihlutasamstarfi með flokkum sem eru tilbúnir að knýja fram breytingar í borginni,“ segir hann. Hildur Björnsdóttir, oddviti Sjálfstæðisflokksins, vill einnig knýja fram breytingar í borginni. „Við göngum alveg óbundin til kosninga. Við vonum bara að við fáum nægan styrk til að geta myndað meirihluta um breytingar,“ segir hún. Gætirðu hugsað þér að vinna með Degi og Samfylkingunni? „Það yrði kannski ekki meirihluti um breytingar - en aftur; við göngum óbundin til kosninga,“ segir Hildur. Flokkur fólksins eygir von um að ná öðrum manni inn. „Okkur langar mjög mikið að fá inn mann númer tvö sem er Helga Þórðardóttir kennari, alveg frábær manneskja, mjög reynslurík. Og já okkur langar mjög að komast í meirihluta,“ segir Kolbrún Baldursdóttir, oddviti Flokks fólksins.
Borgarstjórn Sveitarstjórnarkosningar 2022 Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur. Mest lesið Ók blindfullur við Grímsvötn og hótaði að drepa alla Innlent Langt í að þeir nái sér að fullu Innlent Vopnuð rán tíðari en fólk gerir sér grein fyrir Innlent Óttast að saga slökkviliða á Íslandi glatist Innlent Tveir látnir eftir að bíll hafnaði í sjónum við Stokkhólm Erlent Á ofsahraða undir áhrifum fíkniefna Innlent Karlremba sé komin í tísku Innlent Arnar Þór vantaði sex meðmæli upp á Innlent Fengu aðstoð sérsveitar og Gæslunnar við handtöku við Grímsvötn Innlent Svakalegt að sjá fylgisaukningu Höllu Hrundar Innlent Fleiri fréttir Vopnuð rán tíðari en fólk gerir sér grein fyrir Óttast að saga slökkviliða á Íslandi glatist Plokkdagurinn mikli haldinn hátíðlegur um land allt Á ofsahraða undir áhrifum fíkniefna Efnahagsstefnan sé að ýta fólki í verðtryggð lán Ók blindfullur við Grímsvötn og hótaði að drepa alla Langt í að þeir nái sér að fullu Lögregla með eftirför í Vogahverfi Íslandsferðin sem breyttist í martröð Fundu hræ fimm hvolpa í Mosfellsbæ Fengu aðstoð sérsveitar og Gæslunnar við handtöku við Grímsvötn Sigurvin dró smábát í land Vill að fréttastofa RÚV biðji Maríu Sigrúnu afsökunar Lögreglan lofar góðu vegaeftirliti á Suðurlandi í sumar Landskjörsstjórn tilkynnir á morgun hvaða listar eru gildir Mögulega að hægjast á landrisi í Svartsengi Karlremba sé komin í tísku Voru með stæla og neituðu að fara upp úr fyrr en löggan mætti Arnar Þór vantaði sex meðmæli upp á Sprengisandur: Peningastefna, ESB og lagareldi Lögregla kölluð út vegna ungmenna til leiðinda í sundlaug Svakalegt að sjá fylgisaukningu Höllu Hrundar Minni lyfjanotkun og meiri vellíðan í sérstöku heilabilunarþorpi Mennirnir tóku annan starfsmannanna hálstaki Líklegt að það styttist í brotmörk Helga lenti einnig í vandræðum Eiríkur og Ástþór fá frest til að bæta við undirskriftum Hættuástand í Grindavík og æsispennandi forsetakosningar Gefur lítið fyrir útskýringar fréttastjórans Handteknir á hlaupum eftir vopnað rán í Reykjavíkurapóteki Sjá meira