Þrjú hundruð miðar á Víkingsleikinn fara í sölu klukkan ellefu Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 22. september 2021 09:30 Víkingarnir Nikolaj Hansen, Atli Barkarson og Kári Árnason fagna hér sigri í Víkinni í sumar. Vísir/Hulda Margrét Víkingar geta orðið Íslandsmeistarar í fyrsta sinn í þrjátíu ár um næstu helgi og miklu fleiri vilja komast á leikinn en miðar í boði. Víkingar tóku upp hraðpróf til að geta fjölgað áhorfendum upp í 1500 manns.
Víkingar eru með eins stigs forskot á Breiðablik fyrir lokaumferðina og nægir því sigur á Leikni á heimavelli sínum í Víkinni til að tryggja sér fyrsta Íslandsmeistaratitil félagsins frá 1991. Guðjón Guðmundsson ræddi stöðu Víkinga við framkvæmdastjórann Haraldur Haraldsson í gær og það má búast við því að margir Víkingar verði við tölvuna sína í kringum ellefu á eftir. Ætla að fara nýja leið „Við höfum verið að selja hingað til í tvö fimm hundruð manna hólf en að þessu sinni ætlum við að fara í nýja leið. Þessir þúsund miðar, sem voru þessi tvö hólf, þeir seldust upp strax eftir leikinn á sunnudagskvöld. Við ætlum að fara þá leið núna að nota hraðpróf og vera seinni lega fyrsti viðburðurinn til þess að nota þessi hraðpróf,“ sagði Haraldur Haraldsson, framkvæmdastjóri Knattspyrnudeildar Víkings. Klippa: Gaupi ræddi við Harald framkvæmdastjóra um stærsta leikinn í sögu Víkings „Með því megum við hleypa fimmtán hundruð manns á völlinn plús öllum fimmtán ára og yngri. Til þess að taka þessi hraðpróf þá þarf fólk að skrá sig á hradprof.covid.is og taka þetta test niður á Suðurlandsbraut innan við 48 tíma frá leik,“ sagði Haraldur. Þetta er risaleikur fyrir Víkinga og Guðjón talaði um það við Harald að Víkingar hefðu sennilega geta selt fjögur þúsund miða á leikinn. Sýna leikinn ekki á skjá í Víkinni „Já eftirspurnin er þannig að við erum búnir að neita fullt af Víkingum um miða á leikinn. Með þessu útspili okkar þá fara upp undir þrjú hundruð miðar í sölu á Stubbi klukkan ellefu í fyrramálið, á miðvikudagsmorgun. Það eru þessir aukamiðar,“ sagði Haraldur í gær. Víkingar eru einum sigri frá fyrsta Íslandsmeistaratitli sínum síðan árið 1991.Vísir/Bára Leikurinn verður ekki sýndur á skjá í íþróttahúsinu þrátt fyrir að fleiri vildu vera í Víkinni þennan dag. „Nei veðurspáin er þannig að við ætlum að nota íþróttahúsið undir veitingasölu og slíkt. Það verður ekki hægt að horfa á leikinn þar hjá okkur,“ sagði Haraldur. Ekkert félag með betri árangur í síðustu tíu leikjum „Þetta krefst gríðarlega mikils undirbúnings enda er þetta stærsti leikurinn í sögu félagsins. Ég held að ég megi fullyrða það. Við höfum vissulega orðið Íslandsmeistarar áður og eigum góðan möguleika núna. Það er mikið í húfi,“ sagði Haraldur. „Þú getur séð það á leik liðsins að menn hafi haft fulla trú á þessu. Ef þú skoðar árangur Víkings síðustu fimm umferðirnar þá er ekkert félag með betri árangur í deildinni. Ef þú skorað líka árangur Víkings síðustu tíu umferðirnar þá er ekkert félag með betri árangur í deildinni. Það er ekkert talað of mikið um okkur samt og við erum þakklátir fyrir það,“ sagði Haraldur brosandi. Það má sjá allt spjall Guðjóns við Harald hér fyrir ofan.
Pepsi Max-deild karla Víkingur Reykjavík Mest lesið Sjáðu ótrúlegan flautuþrist Þorvaldar Orra Körfubolti Magnaðasta mark sumarsins á fyrsta degi þess? Fótbolti „Tel mjög vafasamt að klukkan hafi verið sett af stað á réttum tíma“ Körfubolti „Vakna í hádeginu á morgun og fer að hugsa um Valsarana“ Körfubolti LA Rams velja nýliðana í 16 milljón dollara glæsivillu Sport „Frábær úrslit fyrir okkur og félagið“ Fótbolti „Fyrst og fremst var þetta vinnuframlag frá öllum“ Fótbolti Ivan Toney á innkaupalista Manchester United Fótbolti Hristir hausinn yfir „glórulausum“ og „smásálarlegum“ ummælum Körfubolti Dagskráin í dag: Oddaleikur og nýliðaval Sport Fleiri fréttir Uppgjörið: Keflavík - Breiðablik 2-1| Sami Kamel afgreiddi Blika KR fékk ungan Svía fyrir gluggalok 350 þúsund krónur i sektir og tveir fá þriggja mánaða bann Tíu Grindvíkingar unnu í Eyjum Æfði með FH en fékk ekki samning og skipti síðan í Hauka Bikarmeistararnir bjóða frítt á völlinn „Hún á eftir að fá að skína aðeins meira“ Krakkalæti og langt bann eða gult og málið dautt? Taka gamlar hetjur fram skóna í bikarnum í dag? „Á sama tíma í fyrra held ég að þetta hafi verið gult“ „Skrítið að spila á móti liði sem þú varst í þegar þú varst ungur“ Lærisveinninn laut í lægra haldi Tíu KR-ingar skoruðu níu í gölnum leik Áhugaverður skiptidíll FH og Vals á leikdag Uppgjörið: Valur - FH 3-0 | Nýtt leikskipulag skilaði frábærum árangri Vaktin: Lokadagur félagsskiptagluggans á Íslandi Vestri fær liðsstyrk úr dönsku úrvalsdeildinni Fylkir fær liðsstyrk frá Stjörnunni Óli Kalli í Val og Beitir í HK Danijel Djuric á markið: Annars hefði ég aldrei fagnað svona Fjölnir fyrsta liðið í sextán liða úrslit Ekroth og þrír aðrir í banni í næstu umferð Bestu deildarinnar Glugginn að lokast – Íslandsmeistari í KFA og Málfríður heim Gary Martin til Ólafsvíkur Ótrúlegur lækningamáttur í dalnum vekur furðu „Mér fannst ódýrt af Arnari að bera þetta saman“ Barnshafandi eftir langt ferli sem tók á andlega „Karakter í mínum stelpum, þær gáfust aldrei upp“ „Þetta fór svolítið mikið yfir á þeirra forsendur“ Uppgjörið: Fylkir - Þróttur 1-1 | Nýliðarnir björguðu stigi undir lokin Sjá meira