Stjórnvöld boði stöðnun í nýju fjárlagafrumvarpi Eiður Þór Árnason skrifar 30. nóvember 2021 16:14 Sonja Ýr Þorbergsdóttir, formaður BSRB. Aðsend BSRB gagnrýnir nýtt fjárlagafrumvarp ríkisstjórnarinnar og segir það boða stöðnun í opinbera geiranum á sama tíma og blása þurfi til sóknar.
Bæta þurfi verulega í útgjöld ríkisins til almannaþjónustunnar og einungis sé boðuð óveruleg aukning í frumvarpinu. Þá sé ákalli eftir auknu fé í heilbrigðisþjónustuna ekki svarað. „Þannig eru til að mynda aukin framlög til heilbrigðisþjónustunnar að stærstum hluta vegna heimsfaraldursins og byggingu nýs Landspítala en ekki til að styrkja heilbrigðiskerfið í heild sinni,“ segir í tilkynningu frá BSRB. Þar að auki sé ekki slakað á aðhaldskröfum til mikilvægra ríkisstofnanna. „Eftir vanfjármögnun sem má rekja aftur um áratug er kominn tími til að blása til sóknar og grípa til aðgerða sem fela í sér raunverulega lífskjarasókn. Það er gert með því að styrkja almannaþjónustuna til að standa undir sterkri velferð og tryggja að ekki verði gengið enn frekar á andlega og líkamlega heilsu starfsfólksins sem veitir þjónustuna.“ Bjarni Benediktsson fjármála- og efnahagsráðherra kynnti fjárlagafrumvarp ríkisstjórnarinnar í morgun.Vísir/Vilhelm Þurfi að endurskoða fyrirkomulag barnabóta BSRB bætir við að öruggt húsnæði á viðráðanlegu hafi verið ein stærsta krafa launafólks en engin breyting sé boðuð á framlögum til húsnæðisuppbyggingar í fjárlagafrumvarpinu. Slíkt valdi miklum vonbrigðum. „Aukning ráðstöfunartekna tekjulægstu hópanna sem boðuð er í fjárlagafrumvarpinu er til bóta en eins prósents hækkun á örorkulífeyri umfram verðlag mun ekki hafa mikil áhrif á lífskjör öryrkja og því síður hjálpa þeim sem fastir eru í fátæktargildru að komast út úr vandanum,“ segir í tilkynningu. Hækkun skerðingarmarka barnabóta sé jákvæð en þó þurfi að ráðast í heildarendurskoðun á barnabótakerfinu. „Auka verður framlög til almenna íbúðakerfisins, hækka greiðslur almanna- og atvinnuleysistrygginga til að draga úr tekjuójöfnuði, og draga verður stórlega úr tekjutengingum barnabótakerfisins þannig að bæturnar skerðist aðeins í allra hæstu tekjutíundunum.“
Fjárlagafrumvarp 2022 Ríkisstjórn Katrínar Jakobsdóttur Vinnumarkaður Tengdar fréttir Bjarni segir hvorki þörf á skattahækkunum né niðurskurði á næstu árum Bjartsýni ríkir í fyrsta fjárlagafrumvarpi og fjármálaáætlun ríkisstjórnarinnar sem reiknar með meiri afkomubata ríkissjóðs en áður var áætlað. Það skili sér til fyrirtækja og heimila því hvorki þurfi að hækka skatta né skera niður til að halda upp góðri opinberri þjónustu. Barnabætur verið auknar og frítekjumark eftirlaunafólks tvöfaldað. 30. nóvember 2021 11:56 Hækka barnabætur á næsta ári fyrir tekjulægri Skerðingamörkum barnabóta verður breytt á næsta ári og hækka neðri skerðingamörk hjá einstæðum foreldrum úr 351.000 krónum á mánuði í 379.083 krónur. 30. nóvember 2021 11:12 Auka framlag til heilbrigðismála um sextán milljarða Gert er ráð fyrir að framlög til heilbrigðismála aukist um 16,3 milljarða króna á næsta ári, samkvæmt nýju fjárlagafrumvarpi ríkisstjórnarinnar sem kynnt var í dag. 30. nóvember 2021 10:36 Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur. Mest lesið Fannst látinn í klefa sínum á Litla Hrauni Innlent Vinnubrögðin gátu leitt til dauða Innlent Hafi mögulega reynt að lenda á ísilögðu vatninu Innlent Nefndin aldrei heyrt aðrar eins frásagnir en lítið að gerast Innlent Halla fremst með 29,7 prósent í nýrri könnun Prósents Innlent Glórulausar framkvæmdir raski velferð íbúa hjúkrunarheimilis Innlent Hindraði mann sem ætlaði að komast úr bíl við Bónusbúð Innlent Kveðst ekki svindla á neinum með happdrætti sínu Innlent Skjálfti fannst vel á suðvesturhorninu Innlent Segir viðmælendur sitja undir hótunum netaktívista Innlent Fleiri fréttir Stór jarðskjálfti fannst á suðvesturhorninu Ákall frá föður látins fanga og beinagrindur á Bessastöðum Kveðst ekki svindla á neinum með happdrætti sínu Örlætisgjörningur ríkislögreglustjóra til tals á þinginu Brynjar hefur ekki orðið var við neina skrímsladeild í Valhöll Framkvæmdir muni ekki hafa marktæk áhrif á daglega starfsemi Segja varkárni ávallt hafa verið Haraldi efst í huga Bjóða farþegum að breyta ferðum vegna mögulegs verkfalls Grunaður um að valda konunni áverkum sem leiddu hana til dauða Byrja að sekta vegna nagladekkja þrettánda maí Ósáttur með tal eftirlitsmannsins í kaupfélaginu en sektin stendur Nefndin aldrei heyrt aðrar eins frásagnir en lítið að gerast Á vesturleiðinni en ekki á hundrað og tíu Hægagangur í viðræðum við flugvallarstarfsmenn og styttist í aðgerðir Sanngirnisbætur, kjaraviðræður og andlát á Litla-Hrauni Hafi mögulega reynt að lenda á ísilögðu vatninu Sækjast eftir frekara gæsluvarðhaldi vegna andlátsins við Kjarnagötu Tjá sig ekkert um gang Hamraborgarrannsóknarinnar Hindraði mann sem ætlaði að komast úr bíl við Bónusbúð Segir viðmælendur sitja undir hótunum netaktívista Glórulausar framkvæmdir raski velferð íbúa hjúkrunarheimilis Fannst látinn í klefa sínum á Litla Hrauni Vinnubrögðin gátu leitt til dauða Halla fremst með 29,7 prósent í nýrri könnun Prósents Viðræður „á viðkvæmu stigi“ og fundi frestað til morguns Stærsti skjálftinn 3,5 að stærð Áslaug Arna mjólkar vel í fjósinu á Hvanneyri Líklega fundað fram eftir kvöldi Til vandræða á hóteli og réðst svo á mann við Hlemm Lífshættuleg meðhöndlun barna á vöggustofum og þrír eftir í bakgarðshlaupi Sjá meira
Bjarni segir hvorki þörf á skattahækkunum né niðurskurði á næstu árum Bjartsýni ríkir í fyrsta fjárlagafrumvarpi og fjármálaáætlun ríkisstjórnarinnar sem reiknar með meiri afkomubata ríkissjóðs en áður var áætlað. Það skili sér til fyrirtækja og heimila því hvorki þurfi að hækka skatta né skera niður til að halda upp góðri opinberri þjónustu. Barnabætur verið auknar og frítekjumark eftirlaunafólks tvöfaldað. 30. nóvember 2021 11:56
Hækka barnabætur á næsta ári fyrir tekjulægri Skerðingamörkum barnabóta verður breytt á næsta ári og hækka neðri skerðingamörk hjá einstæðum foreldrum úr 351.000 krónum á mánuði í 379.083 krónur. 30. nóvember 2021 11:12
Auka framlag til heilbrigðismála um sextán milljarða Gert er ráð fyrir að framlög til heilbrigðismála aukist um 16,3 milljarða króna á næsta ári, samkvæmt nýju fjárlagafrumvarpi ríkisstjórnarinnar sem kynnt var í dag. 30. nóvember 2021 10:36