Amber Heard vill áfrýja Ellen Geirsdóttir Håkansson skrifar 5. desember 2022 21:36 Amber Heard í dómsal í Virginíu. AP/Evelyn Hockstein Lögmannateymi leikkonunnar Amber Heard hefur skilað inn beiðni um áfrýjun dóms í máli hennar og fyrrverandi eiginmanns hennar Johnny Depp.
Eldfimt meiðyrðamál Depp og Heard tók yfir fjölmiðla í vor en þann 1. júní síðastliðinn hafði Depp betur fyrir dómi. Heard var í kjölfarið dæmd til þess að greiða fyrrverandi eiginmanni sínum 15 milljónir Bandaríkjadala í skaðabætur eða um tvo milljarða íslenskra króna. Daginn eftir að dómurinn var kveðinn upp og Heard sakfelld bárust fregnir af því að leikkonan ætlaði sér að áfrýja dómnum. Lögmaður hennar greindi jafnframt frá því að hún teldi sig eiga möguleika á að vinna málið fyrir æðri dómstól. Samkvæmt umfjöllun BBC hefur lögmannateymi Heard nú óskað eftir því að dómi málsins sé snúið við eða málið tekið upp að nýju. Beri þau fyrir sig að réttarhöldin hafi verið haldin í röngu ríki, en þau voru haldin í Virginíu. Þá er því haldið fram að málið hafi ekki átt að fara fyrir rétt í Bandaríkjunum þar sem breskir dómstólar höfðu nú þegar komist að þeirri niðurstöðu að Depp hefði beitt Heard ofbeldi. Sú niðurstaða varð í meiðyrðamáli sem Depp höfðaði gegn breska miðlinum The Sun árið 2018 fyrir að halda því fram að hann hefði beitt eiginkonu sína ofbeldi . Einnig mótmæla lögmenn Heard ákvörðun dómarans að útiloka ákveðin sönnunargögn frá málinu, þar á meðal athugasemdir frá sálfræðingi Heard, þar sem greint er frá ásökunum um ofbeldi.
Deilur Johnny Depp og Amber Heard Bandaríkin Bretland Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur. Mest lesið Hjól undan strætó braut svalir á annarri hæð Innlent Meint framhjáhald og sambandsslit í stunguárásarmáli Innlent „Kastljós á ekki að vera Staksteinar“ Innlent Neyðast óvænt til að tæma laugina Innlent Vildi heimsækja krabbameinssjúka móður sína en vísað úr landi Innlent Skúli Tómas sinnir sjúklingum af og til Innlent Halla Hrund áfram efst Innlent Ákvörðun Seðlabankans sé óskiljanleg Innlent Forsetavaktin 2024: Hver verður sjöundi forseti lýðveldisins? Innlent „Þetta getur ekki annað en endað með algjörum ósköpum“ Innlent Fleiri fréttir Grænlendingar segja sig úr Norðurlandaráði Skýrustu merkin um lofthjúp um bergreikistjörnu til þessa Enn og aftur tafir á málaferlum gegn Trump Umfangsmestu árásir Rússa í nokkrar vikur Trump blótaði þegar Daniels lýsti meintu samneyti þeirra Hrina árása á þýska stjórnmálamenn veldur áhyggjum Um 800.000 Evrópubúar taldir hafa fallið fyrir kínverskri svikamyllu Bandaríkjamenn stöðvuðu vopnasendingu til Ísrael í síðustu viku Annar hvirfilbylurinn í Oklahoma á rúmum mánuði Segir Bandaríkjamenn þurfa að þrýsta á Ísraela Skotárás við heimili Drake Stormy Daniels í dómsal með Trump Lífverðir Selenskís sakaðir um að skipuleggja banatilræði Reynt að siga lögreglu á vitni í málinu gegn Trump Fundu hlerunarbúnað í fundarherbergi ráðherra Pútín hefur fimmta kjörtímabilið með meiri völd en áður Sagðist saklaus af því að hafa drepið með eitruðum sveppum Verðhækkanir á döner-kebab eitt helsta áhyggjuefni Þjóðverja Geimskoti Starliner var frestað í nótt Segja nýjar reglur um merkingar blekkingarleik laxeldisfyrirtækja Ísraelsmenn í aðgerðum í Rafah og taka yfir landamærastöðina Tillagan „langt frá“ grundvallarkröfum Ísraela Ferðamannastaðir Færeyja lokaðir vegna viðhalds Bein útsending: Starliner ber geimfara til geimstöðvarinnar Hamas samþykkir vopnahléstillögu Áttatíu og tveggja ára Bernie vill sex ár í viðbót Ávítti Trump aftur og ítrekaði fangelsishótun Reiðir yfir ummælum Macrons og halda æfingar með kjarnorkuvopn Sökktu rússneskum hraðbát með sjálfsprengidróna Verður næsti formaður Skoska þjóðarflokksins Sjá meira