Svörtu sandar til frumsýningar á Berlinale

Svörtu sandar hafa verið valdir til frumsýningar á Berlinale.
Svörtu sandar hafa verið valdir til frumsýningar á Berlinale. Ljósmynd/Juliette Rowland

Alþjóðlega kvikmyndahátíðin Berlinale hefur valið Svörtu sanda sem eitt af sjö verkefnum til frumsýninga utan heimalands, fyrst íslenskra þáttasería. Hátíðin verður haldin í febrúar næstkomandi en nærri 200 verkefni alls staðar að úr heiminum sækja um á ári hverju. Berlinale er ein stærsta kvikmyndahátíð í heiminum sem dregur, í venjulegu árferði, að yfir hálfa milljón manns, þar með talið kvikmyndagerðarfólk og annað fólk í faginu frá yfir 130 löndum.

Í umsögn dómnefndar um Svörtu sanda er seríunni hrósað sérstaklega fyrir dýpt í karaktermótun, óvenjulegan snúning á hina hefðbundnu leit að sökudólg í glæpaseríum með því að leyfa persónulegu lífi og áskorunum karakteranna að vega þyngra en málið sjálft sem þau rannsaka. Þar að auki geri áferð seríunnar, myndatakan og hið fallega umhverfi suðurstrandar Íslands, verkefnið sannarlega einstakt að mati nefndarinnar.

Nú þegar hafa Svörtu sandar verið seld til Kína, Ástralíu, Belgíu, Finnlands, Hollands og Indlands auk þess sem frekari fregna af sölum er að vænta á komandi vikum sem gerir að verkum að þættirnir verða aðgengilegir í meira og minna öllum heiminum.

„Þetta er gríðarlegur heiður fyrir okkur öll sem stöndum að seríunni. Umsögn dómnefndarinnar hittir okkur beint í hjartastað og virðist skilja fullkomlega okkar sýn á verkefnið. Ég hef alltaf viljað gera sjónvarp sem er áskorun fyrir áhorfendur að horfa á og meðtaka, vinna með raunverulegar tilfinningar, jafnvel óþægilegar og er ótrúlega hreykinn af þessari viðurkenningu sem sköpunarverk okkar í Glassriver og sérstaklega meðhöfunda minna, Aldísar Amah Hamilton og Ragnars Jónssonar, fær með þessu vali,“ segir Baldvin Z, leikstjóri Svörtu sanda, einn höfunda og eigenda Glassriver.

„Við hjá Glassriver erum mjög stolt af þessu afreki Svörtu sanda. Að framleiðslu á svona seríu koma hundruðir einstaklinga, þar sem er hvert og eitt er ómissandi og í þessu verkefni er ljóst að öll hafa skilað sínu og gott betur en það. Við erum sérstaklega þakklát Stöð 2 fyrir að hafa haft trú á verkefninu og auðvitað öllum erlendum meðframleiðendum og samstarfsaðilum sem gerðu okkur það kleift að láta það verða að veruleika, að ógleymdri auðvitað Kvikmyndamiðstöð Íslands og ráðuneytinu fyrir þeirra stuðning og hvatningu,” segir Arnbjörg Hafliðadóttir framleiðandi og einn eigenda Glassriver.

Þetta verður í fyrsta skipti sem Baldvin Z fer með verk á Berlinale en hann hefur átt góðu gengi að fagna á Locarno í Sviss, Busan í Suður- Kóreu, Toronto í Kanada með fyrri verk sín, Lof mér að falla og Vonarstræti sem er enn mest verðlaunaða verkefni sögunnar á Edduverðlaununum.

mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú hefur legið í dvala allt of lengi svo nú er komið að því að láta hendur standa fram úr ermum. Gefðu þér tíma til að sinna ungum sem öldnum í fjölskyldunni.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lucinda Riley og Lucinda Riely
2
Birgitta H. Halldórsdóttir
3
Birgitta H. Halldórsdóttir
4
Lotta Luxenburg
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú hefur legið í dvala allt of lengi svo nú er komið að því að láta hendur standa fram úr ermum. Gefðu þér tíma til að sinna ungum sem öldnum í fjölskyldunni.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lucinda Riley og Lucinda Riely
2
Birgitta H. Halldórsdóttir
3
Birgitta H. Halldórsdóttir
4
Lotta Luxenburg