Aðalsöngvari The Commitments stígur á svið í Háskólabíói Heimir Már Pétursson skrifar 29. apríl 2024 20:00 Andrew Strong fór ungur að árum með aðalhlutverkið í The Commitments árið 1991. Hann segist hafa gripið tækifærið til að komast til Íslands þegar honum bauðst að syngja á heiðurstónleikum í Háskólabíói. Stöð 2/Arnar Það verður mikið fjör á tónleiksýningu í Háskólabíói þegar fjölmennur hópur íslenskra tónlistarmanna flytur lög úr kvikmyndinni The Commitments frá árinu 1991. Andrew Strong, sem var aðalleikari og söngvari kvikmyndarinnar, kemur fram á sýningunni.
Fréttastofan leit við á lokaæfingu fjölskipaðrar sveitar íslenskra tónlistarmanna og Andrew Strong í dag. Nú eru liðin um 35 ár frá því kvikmyndin The Commitments í leikstjórn Alans Parkers kom út og gerði mikla lukku. Aðalsöngvarinn Andrew Strong segir tónlistina lifa eins og alla góða tónlist. Andrew Strong er hæstánægður með íslensku tónlistarmennina sem koma fram með honum.Stöð 2/Arnar „Já, hún er enn vinsæl. Ég var að tala um það áðan, hver hefði trúað því að fimmtugur væri ég enn að syngja þessi lög? Nei, en það er frábært að vera hérna," segir Gréta Salome er listrænn stjórnandi sýningarinnar. Hverju mega áhorfendur búast við annað kvöld? „Alveg ótrúlega miklu stuði. Fyrst og fremst alveg geggjaðri tónlist sem er tímalaus, klassísk og allir þekkja,“ segir Gréta. Andrew er mjög spenntur fyrir tónleikasýningunni. „Ég hef aldrei áður tekið þátt í svona sýningu. Þegar ég var beðinn um að vera með … var aðalaðdráttaraflið fyrir mig að koma til Íslands. Því ég hafði aldrei komið til Íslands svo mér fannst það frábært,” segir Andrew. Gréta Salome listrænn stjórnandi sýningarinnar lofar kröftugri tónleikasýningu.Stöð 2/Arnar Sýningin er einhvers konar óður til kvikmyndarinnar. „Við erum með Björn Stefánsson sem mun leiða okkur í gegnum sögu the Commitments. Líma sýninguna saman. En annars er þetta fyrst og fremst tónlistin. Tónlistin talar algerlega sínu máli í þessari sýningu,“ segir Gréta. Og sýningin verður líka ný upplifun fyrir Andrew. „Ég hef aldrei áður verið í sýningu til heiðurs The Commitments. Ég syng auðvitað Commitments-lög í minni eigin hljómsveit. Ég verð að syngja Mustang Sally og þess háttar því fólk dáir það lag og væntir þess að ég syngi það,” segir írski söngvarinn kampakátur með hljómsveitina. „Allir hljóma frábærlega og allir eru hlýir og vinalegir. Ég hlakka til að koma fram annað kvöld. Ef þú ert ekki með miða drífðu þig,” skoraði hann á áhorfendur kvöldfrétta.
Tónleikar á Íslandi Reykjavík Íslandsvinir Mest lesið Af vængjum fram: „Krakkar, ekki gera þetta heima“ Lífið Smekklegt einbýli í Fossvogi á 230 milljónir Lífið Gríman 2024: Saknaðarilmur hlaut flestar tilnefningar Menning Þórdís Björk og Júlí Heiðar eignuðust hárprúða stúlku Lífið Matti og tengdó selja 220 milljóna króna einbýlishús Lífið Baltasar og Sunneva afhjúpa kynið Lífið Forseti Hæstaréttar og Kristján Loftsson í gámapartýi Lífið Inga Lind selur íbúð við Valshlíð Lífið Endurtekið hvött til að hvíla bláa litinn Lífið Af vængjum fram: Búlgörsku mafíunni að mæta yrði Ásdísi dömpað Lífið Fleiri fréttir Smekklegt einbýli í Fossvogi á 230 milljónir Af vængjum fram: „Krakkar, ekki gera þetta heima“ Þórdís Björk og Júlí Heiðar eignuðust hárprúða stúlku Föruneyti Pingsins: Enn barist í Baldurs Gate Forseti Hæstaréttar og Kristján Loftsson í gámapartýi Óvænt að „gáfumannarapparar“ herji stríð af þessu tagi Matti og tengdó selja 220 milljóna króna einbýlishús Baltasar og Sunneva afhjúpa kynið Endurtekið hvött til að hvíla bláa litinn Gleðitár hjá hundrað konum á Geysi Af vængjum fram: Búlgörsku mafíunni að mæta yrði Ásdísi dömpað „Eru endaþarmsmök hættuleg?“ Biggi Maus breiðir yfir Frikka Dór Farnar á hestbak eins og hálfs og fjögurra ára Fleiri sniðgengu en ekki Von á ákæru eftir spennuþrungna daga í Malmö Inga Lind selur íbúð við Valshlíð „Þetta er náttúrulega sorgarsaga okkar Íslendinga“ Magnús Scheving og Hrefna glæsileg á opnun Sjálands Fann fíkniefnin strax Þátttaka Ísraela hafi skemmt mikið Ráðist á Steve Buscemi og hann fluttur á sjúkrahús Táraflóð í útgáfuteiti Bjarna Hlutu „Óskarinn“ í brúðkaupsskipulagningu Þessi skipuðu íslensku dómnefndina í Eurovision Herra Hnetusmjör hitti Akon: „Þeir vita sem vita“ Ari Bragi og Dóróthea eignuðust dreng Jón og Hafdís festu kaup á einbýli með bátaskýli Greindu frá kyninu á ströndinni Stjörnulífið: „Mér fannst mæðradagurinn alltaf triggerandi“ Sjá meira