Stuðningur við Úkraínu hljóti að vega þyngra en „sérhagsmunir í landbúnaði“ Margrét Helga Erlingsdóttir skrifar 23. maí 2023 15:33 ólafur Stephensen framkvæmdarstjóri félags atvinnurekanda Vísir/Vilhelm Alþingi samþykkti í fyrra að tillögu fjármála-og efnahagsráðherra að fella niður tolla á vörur sem koma frá Úkraínu en þetta var liður í stuðningi Íslands við efnahagslíf Úkraínu á stríðstímum. Í lok mánaðar rennur ákvæðið út og framkvæmdastjóri Félags atvinnurekenda óttast að fjármálaráðherra nái ekki að endurnýja ákvæðið í tæka tíð.
Neytendur á Íslandi hafa þá einnig notið góðs af lægra vöruverði þeirra vara sem koma frá Úkraínu vegna bráðabirgðaákvæðisins. Ísland fetaði í fótspor Evrópusambandsins og Bretlands þegar bráðabirgðaákvæði í tollalögum var sett fram og samþykkt á Alþingi. Bæði ESB og Bretland hafa nú framlengt sín ákvæði og stuðning gagnvart Úkraínu en það íslenska rennur út í lok mánaðar. Ólafur Stephensen framkvæmdastjóri Félags atvinnurekenda hefur áhyggjur af því að fjármálaráðherra nái ekki að framlengja þetta úrræði í tæka tíð. „Það er ekki komið neitt frumvarp frá fjármálaráðherranum. Þau svör fást úr ráðuneytinu að það sé væntanlegt en við höfum áhyggjur af því að það náist einfaldlega ekki að afgreiða þetta á þinginu í tæka tíð. Ég hef ákveðna áhyggjur af því að þessi seinkun sé tilkomin vegna mikils þrýstings frá hagsmunaaðilum í landbúnaði sem hafa séð ofsjónum yfir þessari takmörkuðu samkeppni sem hefur komið frá úkraínskum búvörum. Ég vona að sjálfsögðu að svo sé ekki því annars vegar hagur neytenda og hins vegar stuðningurinn við okkar vinaríki Úkraínu hlýtur að vega miklu þyngra en einhverjir sérhagsmunir í landbúnaði.“ Bændasamtök Íslands sögðu í umsögn til Alþingis 13. júní 2022 að ákvæðið gæti leitt til þess að fluttar yrðu til Íslands landbúnaðarvörur frá Úkraínu í meira mæli sem gæti haft neikvæð áhrif á verð eða framboð íslenskra landbúnaðarvara. „Okkur finnst það bara satt að segja mjög sérkennilegt og lítil reisn yfir því að Bændasamtök Íslands voru eini hagsmunaaðilinn sem lagðist gegn þessari löggjöf á sínum tíma og hafa kvartað sáran undan henni síðan og legið í þingmönnum og ráðherrum um að falla frá þessu.“
Neytendur Skattar og tollar Úkraína Matvöruverslun Innrás Rússa í Úkraínu Tengdar fréttir Úkraínskar kjúklingabringur langtum ódýrari en þær íslensku Kílóið af frosnum úkraínskum kjúklingabringum kostar neytendur á bilinu 24-32 prósent minna en aðrar innfluttar bringur. 21. mars 2023 22:13 Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur. Mest lesið María Sigrún birtir tölvupósta Dags Innlent Hjól undan strætó braut svalir á annarri hæð Innlent Meint framhjáhald og sambandsslit í stunguárásarmáli Innlent Neyðast óvænt til að tæma laugina Innlent „Kastljós á ekki að vera Staksteinar“ Innlent Vildi heimsækja krabbameinssjúka móður sína en vísað úr landi Innlent Skúli Tómas sinnir sjúklingum af og til Innlent Halla Hrund áfram efst Innlent Ákvörðun Seðlabankans sé óskiljanleg Innlent Efstar með ómarktækan mun á milli sín Innlent Fleiri fréttir Facebook bannar Ástþóri að auglýsa Býður þjóðarhöll Færeyja undir landsleiki Íslands Reykjavík lækkar gjaldskrár vegna þjónustu við barnafjölskyldur Fylgjast grannt með gangi mála Margt bendi til þess að gosinu sé lokið María Sigrún birtir tölvupósta Dags „Á endanum snýst þetta allt um peninga“ Sækja veikan sjómann Eldur í iðnaðarhúsnæði á Höfða Efstar með ómarktækan mun á milli sín Fjögurra bíla árekstur efst í Ártúnsbrekku Björn Leví segir Harald hafa fundið skálkaskjól í orðum Bjarna Flæði innan við einn rúmmetri á sekúndu „Ég hafna því að við séum ekki að sinna velferð dýra á þessum bæ” Ákvörðun Seðlabankans sé óskiljanleg „Ríkisfjármálin eru í ruglinu“ Atvinnubílstjórar sýni minnstu tillitssemina Orkuveitan skilar Elliðaárdalnum Stuðningsmenn Katrínar áhugasamari en aðrir Lengri lokun þar sem kerfið hefur „hangið á bláþræði“ Skúli Tómas sinnir sjúklingum af og til „Allir að bíða eftir þessum atburði sem ekki skeður“ Nýborin lömb finnist dauð og deyjandi úr vosbúð „Hef haft áhyggjur af fangelsismálum frá því ég kom í embætti“ „Kastljós á ekki að vera Staksteinar“ Kannabis en ekki kjólar í kassanum Halla Hrund áfram efst Fjöldaúrsagnir kvenna úr mannkyninu Leki kom að bát út af Barða Óbreyttir stýrivextir, fangamál og dræmt Eurovision áhorf Sjá meira
Úkraínskar kjúklingabringur langtum ódýrari en þær íslensku Kílóið af frosnum úkraínskum kjúklingabringum kostar neytendur á bilinu 24-32 prósent minna en aðrar innfluttar bringur. 21. mars 2023 22:13